21.04.1922
Efri deild: 47. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í B-deild Alþingistíðinda. (948)

68. mál, fræðsla barna

Forsætisráðherra (S. E.):

Jeg fullyrði, að jeg nefndi rjettar tölur í fyrri ræðu minni; tímann til heimangönguskólans má stytta úr 24 vikum niður í 12 vikur. Stysti tíminn aftur, sem barn má vera í farskóla, eru 8 mánuðir, og hefir háttv. þm. líklega átt við þann skóla.

Þá vildi háttv. þm. (G. Ó.) halda því fram, að kenslan yrði að eins miklum notum, þó kent væri eigi nema annanhvern dag. En um það efast jeg stórlega.

Háttv. þm. sagði, að frv. væri flutt af mentamálanefnd Nd., og fyrir því væri engin þörf að bera þetta frekar undir fræðslumálastjóra. Það er alveg rjett, að háttv. mentamálanefnd flutti frv., en tveir af hinum upphaflegu flutningsmönnum þess urðu á móti því síðast, vegna þeirra breytinga, sem á því urðu í háttv. Nd.

Þá talaði háttv. þm. um, að fræðslulögunum væri víða ekki fylgt. Það getur vel verið, en það eru engin meðmæli með frv., síður en svo. Þarf því framvegis að hafa eftirlit með því, að þeim sje betur fylgt en verið hefir hingað til.