22.03.1922
Neðri deild: 29. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í B-deild Alþingistíðinda. (95)
1. mál, fjárlög 1923
Hákon Kristófersson:
Jeg á enga brtt. hjer; en það er ein brtt., sem gefur mjer tilefni til að segja nokkur orð.
Háttv. frsm. (B.J.) tók það fram fyrir hönd nefndarinnar að alt væri gert til þess að spara, sem unt væri. Jeg skal síst lasta þessa viðleitni ef henni er rjettilega beitt en sparnaðurinn fer að verða tvísýnn, þegar skera á niður þjóðþrifafyrirtæki. Jeg á hjer sjerstaklega við brtt. um að fella niður símabyggingar á komandi ári. Nefndin er á því að sú niðurfelling eigi frekar að eiga sjer stað en niðurfelling vegalagninga og hafa nokkrir háttv. þm. tekið í sama streng. Þetta getur átt við sumstaðar, en það fer alt eftir því hvernig högum er háttað. Það er orð á því gert að nú fari í vöxt óorðheldni á viðskiftasviðinu. og þykir mönnum það ilt. En verst er þó til þess að vita ef hægt er að heimfæra það upp á hið háa Alþingi. Jeg leyfi mjer að slá því föstu að það á sjer stað, ef till. þessi verður samþ. Jeg vil minna á það, að síminn milli Búðardals og Króksfjarðarness hefir staðið í fjárlögum ár eftir ár, en er ekki framkvæmdur enn. Þetta er að vísu ekki gott að efna ekki gefin loforð en verra er, ef á að taka þau aftur með öllu. Það er satt að nú er þröngt fyrir dyrum og í mörg horn að líta; en undarlegt virðist mjer ef líta ætti síðast til símans, sem allir vita að er ein af aðalsamtengingarmöguleikunum ekki einungis milli hinna ýmsu hjeraða heldur og milli landanna líka. Það má því óhætt telja símann nokkurskonar lyftistöng allra atvinnuvega og gagnsemi hans gerir það að verkum fyrir þá, sem hans hafa not. Hvert það hjerað sem án hans er stendur óútreiknanlega ver að vígi á viðskiftasviðinu en annars og verður því óhæfilegt til þátttöku í hinni sjálfsögðu baráttu sem menn þurfa að hafa fyrir því að dragast ekki aftur úr, sjerstaklega á viðskiftasviðinu.
Háttv. þm. Mýra. (P.Þ.) benti á að alt efni til símans væri keypt í útlöndum, en það sem til veganna færi væri alt tekið innanlands og vissu þetta fleiri en hann: en jeg sje ekki að síminn verði óþarfari fyrir það eða að hægt sje yfirleitt að leggja þann mælikvarða á nytsemi fyrirtækja hvort til þeirra gengur erlent eða innlent efni.
Margir kunna að ætla, að jeg mæli svo mjög með þessum síma vegna þess að hann verði mínu kjördæmi til góðs. Þetta er ekki rjett. Aðeins lítill hluti símans kemur til með að liggja um mitt kjördæmi; en annars skiftir slíkt ekki máli í þessu efni. Aðalatriðið er, að símans er brýn þörf, og Alþingi hefir margviðurkent þessa þörf áður, með því að taka símann í fjárlögin. En þó má segja eins og Bólu-Hjálmar, að loforð sjeu öðrumegin á klárnum, en hinumegin — ? Ja, háttv. deild svarar því. Jeg vona að hún geri það svo, að hennar virðing verði að meiri. Hæstv. atvinnumálaráðh. (Kl.J.) hefir þegar bent á það, að síminn eigi rjett á sjer, og kann jeg honum þakkir fyrir. Hann tók það fram, að ýmsar ólagðar símalínur mundu ekki borga sig, og skildist mjer, að sögumaður hans hefði verið landssímastjórinn sjálfur.
Jeg lít nú þannig á að erfitt sje að segja fyrirfram, hver síminn muni borga sig best. Hitt er mjer kunnugt um, að landssímastjóri hefir oft sagt mjer og öðrum það að símasamband við Vestfjarðakjálkann kæmist því aðeins í lag, að lína yrði lögð um Barðastrandarsýslu. Hann hefir og lagt til, að þessari símalagningu væri hraðað sem mest. Jeg vil nú leyfa mjer að spyrja háttv. fjvn. eða þann hluta hennar, sem vill algerlega hatta að leggja síma með hvaða sanngirni hún geti stutt sitt mál. Jeg vænti, að hún muni svara, að sökum fjárskortsins í landinu sje sem stendur ómögulegt að leggja fje til þess.
Jeg get nú fallist á, að þetta sje rjett, en ekki nema að nokkru leyti, því þótt sýna megi fram á, að fjárhagur í landinu sje örðugur nú, og horfi enda ekki til batnaðar, mátti samþykkja að leggja símann, en heimila um leið stjórninni að fresta lagningu hans. Þannig var sett undir þann leka, að ríkið gengi of nærri sjer. Þetta gerði nefndin ekki, og bendir það óneitanlega í þá átt, að nefndin hafi ekki verið málinu jafnhlynt og henni bar skylda til því hjer liggur fyrir skýlaust margra ára loforð frá þinginu.
Því hefir verið haldið fram hjer í háttv. deild, að símarnir væru til minni nota fyrir þjóðina en vegir. Væri því fullkomlega rjettmætt að leggja þá fremur niður. Jeg skal nú ekki dæma að fullu um það mál, því jeg hefi ekki næga þekkingu á málinu til þess, og jeg býst ekki við að andstæðingar mínir hafi það heldur. En þó skal jeg benda þeim á það, að þar sem sími er, sparar hann mönnum marga ferðina og þar með veginn. Þetta má þó enginn skilja svo, að jeg vilji telja úr vegagerð á jafntorfæru landi og Íslandi, en mjer þykir kynlegt þegar jafngóðgjarnir og greindir menn eins og háttv. þm. Mýra. (P.Þ.) láta sjer sæma að segja, að nýjar símalínur sjeu ekki svo nauðsynlegar, að ekki megi fresta þeim um eitt ár. Ef þeim er frestað um eitt ár, getur fresturinn eins orðið 10 ár. Þannig þekki jeg efndir hins háa Alþingis.
Að því er snertir þessa símalagningu, Búðardalur–Króksfjarðarnes skal jeg geta þess, að fráfarandi stjórn lagði það til, að alt efni til hennar yrði keypt á næsta sumri. En nú hagar þannig til, að allan efnivið verður að flytja sjóleiðis á næstu hafnir, en færa hann svo að vetrinum á þá staði, sem á að nota hann. Jeg býst nú við, að ef þetta kæmist í framkvæmd á næstunni, mundu hjeraðsmenn annast þennan flutning endurgjaldslaust, og leggja jafnvel meira í sölurnar, ef það væri nauðsynlegt til að fá símann sem allra fyrst. Jeg býst við, að þetta sje mörgum hv. þm. kunnugt. en háttv. fjvn. hefir þó ekki viljað sníða tillögur sínar eftir því.
Jeg vil engan dóm leggja á það, hvaða síma muni vera nauðsynlegast að leggja, en jeg hefi ummæli mætra manna um það, að þessi lína frá Búðardal að Króksfjarðarnesi ætti að verða hin fyrsta í röðinni. Þessir menn eru fyrverandi forsrh. (J.M.) og núverandi atvinnumálaráðherra (Kl.J.), að ógleymdum landssímastjóra sjálfum. Geri jeg ráð fyrir, að háttv. deild meti að nokkru þeirra tillögur.
Jeg vænti þess, að háttv. deild aðhyllist ekki till. háttv. nefndar í þessu máli, því enn hefir hún, eða meiri hluti hennar, ekki fært nein rök að því, að nauðsynlegt sje að leggja niður símalagningar; því þótt hún beri við örðugum fjárhag, er það aðeins slagorð, því ef nefndin hefði viljað sýna af sjer það rjettlæti, sem henni og hinu háa Alþingi bar skylda til, hefði hún fært niður fjárveitingu bæði til síma og vega, en sett hvorugt alveg á hakann. Vera má að í þessu tilfelli sje þó þannig háttað að í kjördæmum háttv. nefndarmanna sje nú þegar sími, en eins og vitað er, eru hinar ráðgerðu vegabætur flestar í þeim kjördæmum, og þá fer þetta að verða vel skiljanlegt.
Háttv. 2. þm. Húnv. (Þór.J.) gat þess með rjettu, að mikill hluti af tekjum ríkisins renni í vasa embættismanna þjóðarinnar. Það tjáir ekki að fást um það, en jeg man þá tíð, þegar launalögin voru á döfinni hjer í þinginu og brtt. komu fram frá mjer og öðrum, sem auk þess að vera mjög sanngjarnar drógu mjög úr þeirri útgjaldaaukningu, en voru þó flestar gerfeldar hjer í háttv. deild, og þá var ekki talið, að laun embættismanna mundu sliga svo gjaldþol þjóðarinnar, að nauðsynlegar framkvæmdir yrðu að sitja á hakanum. Þetta er ekki sagt til ámælis, en jeg áleit, að skemra hefði átt að ganga þá, og þeir munu vera margir í þingsætunum, sem nú munu viðurkenna það, og ef til vill í huga sínum viðurkenna, að þeir hafi þá verið helst til örir á það fje, sem þeim hafði verið trúað til að fara með.
Mig minnir að þessi háttv. þm. (Þór.J.) segði, að eins gott væri að strika símalagningarnar alveg út eins og að leggja of fáa. Þetta er að nokkru leyti rjett, en jeg benti á það áður, að ef þingið samþykti að veita fje til þessara fyrirtækja, sýndi það þessu máli sinn besta vilja, en fæli svo landsstjórninni að haga þannig framkvæmdum, er hún áliti gerlegt fjárhagsins vegna.
Þó það eigi ef til vill ekki vel við í umr. um þennan hluta fjárlaganna, vildi jeg þó minna á, að í fjárlagafrumvarpinu eru 2 styrkir, sem til samans nema 16 þúsund krónum. Þessi upphæð er meiri en 1/3 hluti, eða nær því helmingur, þess fjár, sem fyrverandi stjórn áætlaði, að síminn frá Búðardal að Króksfjarðarnesi mundi kosta. Jeg þykist þess nú fullviss, að háttv. fjvn. hafi þótt knýjandi nauðsyn vera til þessara styrkveitinga. En ef litið er á þá meginreglu þessarar háttv. nefndar, að skera niður hin mestu þjóðþrifamál vegna þröngs fjárhags, virðist mjer þó, að hún ætti ekki síður að gæta þessarar reglu sinnar gagnvart bitlingum.
Í brtt. á þskj. 117 við 10. gr. fjárlagafrv. hefir háttv. fjvn. komist að þeirri niðurstöðu að lækka kaup sambandslaganefndar. Jeg er fyllilega sammála í þessu, en mjer kom á óvart, að til væri samningur um, að hver þeirra fengi 2000 krónur á ári. Jeg man ekki betur en að þegar menn voru valdir í þessar stöður, væru valdir ýmsir ágætismenn, sem voru í vel launuðum stöðum hjá þjóðfjelaginu, og var þá litið svo á, að hjer væri um mjög mikil heiðurssæti að ræða, en ekki launuð embætti. Í þeim flokki, sem jeg var þá hjer á þingi, spurði jeg ákveðið að því, hvort líkur væru til sjerstakra launa auk ferðakostnaðar o. þ. u. l. handa þessum mönnum. Því var svarað á þá leið — og það af einum þeirra, sem nú eru í nefndinni — , að svo mundi ekki verða, en ef svo yrði, færu laun hvers nefndarmanns aldrei fram úr 500 krónum. En nú virðist stjórnin hafa samið um 2000 krónur, og jeg veit ekki betur en að það hafi verið gert að fjárveitingarvaldinu fornspurðu.
Að svo mæltu skal jeg láta máli mínu lokið. Þó jeg búist ekki við því, að orð mín hafi haft æskileg áhrif á háttv. þm. allra síst þá, sem aldrei láta sannfærast viðkomkomandi símalagningunni, kunni jeg þó ekki við að láta skera niður jafnmikið áhugamál kjósenda minna og þetta án þess að láta í ljósi megnustu óánægju yfir því.