21.04.1922
Efri deild: 47. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í B-deild Alþingistíðinda. (950)

68. mál, fræðsla barna

Sigurjón Friðjónsson:

Jeg sje ekki, að hjer sje verið að færa niður kröfurnar til kunnáttu barnanna, heldur er breytingin í því fólgin, að fræðslunefndum og skólanefndum er fengið meira vald yfir því, hvernig þessum kröfum er náð.

Jeg er á þeirri skoðun, að börn þurfi ekki 4 ár til þess að ná því fræðslutakmarki, sem sett er í fræðslulögunum, og jeg hefi reynslu fyrir því, að börn, sem aldrei hafa í skóla verið, eru oft betur að sjer en hin, sem verið hafa í skóla ef til vill 4 ár. Jeg vil í þessu sambandi leyfa mjer að geta þess, að skólakennarar við gagnfræðaskólann á Akureyri hafa líka sagt mjer, að unglingar frá barnaskólanum þar sjeu venjulega töluvert ver að sjer, eða ver við frekari kenslu búnir yfirleitt, en unglingar úr sveitum, sem þó venjulegast hafa notið minni skólakenslu.

Jeg er nokkuð vantrúaður á, að barnafræðslan sje í rjettu horfi eins og hún er nú, og legg fyrir mitt leyti mesta áherslu á unglingafræðsluna. Jeg tel því ákvæði í þá átt að rýmka um skólaskyldu barnanna ekki þurfa að vera neina afturför, heldur vel geta verðið til bóta.