25.04.1922
Efri deild: 50. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í B-deild Alþingistíðinda. (960)
68. mál, fræðsla barna
Forseti (G. B.):
Jeg vil vekja athygli á því, að verði málið tekið út af dagskrá nú, er óvíst, að það komist út af þessu þingi. Einmitt fyrir það ákvað jeg fundinn svona snemma, til þess að háttv. Nd. gæti fengið frv. til meðferðar í dag, ef það tæki breytingum hjer.