25.04.1923
Neðri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (1013)
80. mál, stofnun landsbanka
Jón Auðunn Jónsson:
Jeg vildi bæta hjer við örlitlu atriði, sem háttv. 1. þm. Reykv. (JakM) hefir líklega gleymt. — Nefndin hafði sem sje fengið tilmæli um það, að einn bankastjóranna, hr. Kaaber, mætti halda áfram að hafa á hendi lítilfjörlegan aukastarfa, er hann hefir gegnt, þar sem hann er einn af stjórnendum Sjóvátryggingarfjelags Íslands. Það er ekki launanna vegna, sem hann óskar þessa, því þau eru lítil, heldur hins, að hann hefir mikinn áhuga á starfi þessa fjelags, sem er alíslenskt fyrirtæki, og hefir gegnt starfanum frá stofnun fjelagsins, og það er mitt álit, að það sje gagnlegt bankanum, að hann hafi þann starfa áfram. Jeg vil því spyrja hæstv. forsrh. (SE), hvort hann álítur ekki, að þetta muni geta orðið, þótt frv. geri ekki ráð fyrir, að slíkt sje leyfilegt eftirleiðis.