28.04.1923
Neðri deild: 52. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1232 í B-deild Alþingistíðinda. (1020)
80. mál, stofnun landsbanka
Bjarni Jónsson:
Jeg veit ekki, hvort það er sök eða ekki sök að vilja launa bankastjórum hátt, og eigi mun jeg bera þá sök af mjer, þó einhverjir telji þetta saknæmt. Meðan bæði voru útlendir og íslenskir bankastjórar við Íslandsbanka, vildi jeg aldrei láta þá innlendu menn, sem þar störfuðu, vera ver setta hvað laun snerti en þá erlendu, enda væri það næsta óviðurkvæmilegt, ef það gengist við. Jeg mun því fylgja þeim mönnum að málum, sem bera fram þetta launahækkunarfrv., um hækkun á launum bankastjóranna og annara starfsmanna við Landsbankann. Brtt. háttv. 1. þm. Eyf. (StSt) er jeg eindregið mótfallinn.
Það er nú nýbúið að setja tvo menn í bankastjórastöður með 15 þús. kr. árslaunum, og hví ætti þá að láta þessa menn, sem um ræðir í frv., vera skör lægra setta? En það er ekki nema gott, að allur sannleikurinn komi fram á ný, enda þótt hann sje áður kunnur. Það er alkunna, að enginn bankastjóri getur lifað af minna en 15 þús. kr. á ári, hvað sem líður þeim sulti, sem aðrir opinberir embættismenn ríkisins að öðru leyti verða að búa við. Verði bankastjórum þessum eigi goldin þau laun, sem þeim nægi til að lifa á, munu þeir neyðast til að leita fyrir sjer um betur launaðar stöður annarsstaðar, eins og háttv. 1. þm. Reykv. (JakM) drap á. Það eru nógar þær stofnanir til, sem mundu vilja taka við slíkum mönnum og greiða þeim eins há eða enn hærri laun en þetta. Gæti því vel svo farið, að enginn nýtur eða nógu vel fær maður fengist í bankastjórastöður ríkisins.
Þess vegna á það alls ekki við að launa menn í þessum stöðum eftir aldri, þegar um það eitt er að ræða að fá í þær þá allra færustu og bestu menn, sem völ er á í það og það skiftið. Þegar slíkar stöður losna, ríður mest á að fá til þeirra hina þektustu fjármálamenn og reyndustu, sem föng eru á. Þýðir því eigi að bjóða þeim lægstu launin, því þá fást þeir alls ekki, sem eigi er heldur von.
Tökum til dæmis, að nú losna tvær stöður, er menn fara úr fyrir aldurs sakir, og til byðust menn eins alþektir og t. d. Stinnes. Ættum við þá að segja við hann: Þjer þýðir alls ekki að sækja, góðurinn minn, nema þú sættir þig rið lægstu launin, því hjer ert þú aðeins talinn meðal nýliða í þessum störfum, er þú hefir eigi verið hjerlendur bankastjóri áður?
Jeg er samþykkur stefnu frv. í því, að jeg tel rjettara að fella niður ágóðaþóknunina til bankastjóranna, en launa þá heldur þeim mun betur.
Þó menn geri sjaldan órjett af fjegræðgi eða vegna fátæktar, og eigi sje rjett að ætla bankastjórum slíkt, fremur en öðrum, að óreyndu, er hitt þó svo miklu rjettara, að launa mennina svo vel, að þeir fái þarfir sínar uppfyltar. Það er eigi rjett, að kjör þessara manna sjeu þann veg, að þeir geti leiðst til þess að nota aðstöðu sína sjer í hag.