05.05.1923
Efri deild: 56. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1245 í B-deild Alþingistíðinda. (1040)
80. mál, stofnun landsbanka
Forsætisráðherra (SE):
Jeg vil einungis lýsa því yfir, að jeg er með þessu frv. En hins vegar lít jeg svo á, að með samþykt frv. þessa sje fengin viðurkenning þingsins fyrir því, að laun þau, er bankaráðið ákvað bankastjórum Íslandsbanka, hafi ekki verið of há. Því að vitanlega var þingið ekkert bundið við það, sem bankaráð Íslandsbanka gerði, og ef því hefði þótt launin þar of há, þá hefði það ekki átt að fara inn á sömu brautina. Jeg þakka því fyrir þessa viðurkenningu.