05.05.1923
Efri deild: 56. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1246 í B-deild Alþingistíðinda. (1043)

80. mál, stofnun landsbanka

Forsætisráðherra (SE):

Það er skrítið, að háttv. 5. landsk. þm. (JJ) skuli segja, að jeg blandi málunum saman. Það var einmitt hann sjálfur, sem gerði það. Það nær auðvitað engri átt, að Alþingi sje bundið við, hvernig laun í prívatbanka eru ákveðin, sem jafnan eru hærri en í þjóðbönkum. Laun sumra bankastjóranna við Íslandsbanka voru áður 20 þús. kr. og með dýrtíðaruppbót 40 þús. kr., og auk þess „tantieme“. En nú hafa þau verið ákveðin 15 þúsund krónur. með dýrtíðaruppbót af öllum launum eftir verðstuðli þeim, sem dýrtíðaruppbót embættismanna er reiknað eftir. Hæstu launin hafa þá lækkað um 16 þús. kr. Ágóðahlutann mætti auðvitað leggja niður, ef það væri samrýmanlegt við reglugerð bankans, sem jeg er í nokkrum vafa um, en þetta má enn taka til fullrar athugunar, því enn er ekki búið að skipa bankastjórana.