07.03.1923
Neðri deild: 14. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í B-deild Alþingistíðinda. (105)

13. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Jón Þorláksson:

Jeg á hjer brtt. á þskj. 67 við till. meiri hl. fjárhagsnefndar og skal reyna að gera grein fyrir þeim, þó að það verði meira af vilja en mætti vegna hæsi.

Það liggur í augum uppi, að þegar þessi fyrsta endurskoðun tekjuskattslaganna fer fram, er ekki á öðru að byggja en þeirri litlu reynslu, sem þegar er fengin um, hvernig lögin verki. Mesta eftirtekt hefir það vakið, hve undarlegt hlutfall er milli þeirrar upphæðar, sem lögð er á Reykjavík, og þess skatts, sem kemur af öllu landinu utan hennar. Jeg hefi furðað mig mikið á því, að hvorki í skýringum við frv. stjórnarinnar nje í nál. finnast upplýsingar um það, hvernig lögin hafa verkað. Frá slíku verður ekki skýrt, nema með miklum tölum, og á þetta heima í skýringum við frv., en ekki auðvelt að flytja það í þingræðu, svo að jafnskilmerkilegt verði. En af því að þetta hefir farist fyrir hjá þeim. er það stóð næst, verð jeg að gera ofurlitla tilraun til að skýra málið fyrir hv. deild.

Um tekjuskattinn í Reykjavík árið 1922, seni reiknaður er út eftir tekjunum 1921, er það að segja, að til skattstofunnar komu 5288 framtöl, og 1258 öðrum gjaldendum var gert að greiða skatt, sem til samans nam 1437803 kr.

Við leiðrjettingar og niðurfærslur skattstjóra og yfirskattanefndar fækkaði gjaldendum niður í 6463, sem samtals báru 1103269 kr. í skatt. Frá öðrum landshlutum eru ekki fyrir hendi jafnfullkomnar skýrslur, að því leyti, að ekki liggja fyrir breytingar yfirskattanefnda, en upprunalega skatthæðin var um 428000 kr., og mun láta nærri, að áætla eftir því sem orðið hefir hjer í Reykjavík, að þessi upphæð verði eitthvað neðan við 400000 kr. Árið 1921 var erfitt fyrir alla, og átti Reykjavík þar enga sjerstöðu, en þrátt fyrir þetta fer tekjuskatturinn langt fram úr því, sem hann var áætlaður á þinginu 1921.

Heildarupphæðin verður um 11/2 miljón kr. í stað 700000 kr., sem hann var áætlaður, eða með öðrum orðum tvöfaldur á pappírnum við það, sem menn ætluðu, að hann myndi verða í meðalári. Utan Reykjavíkur hefir skattur þessi ekki orðið óvinsæll, sem auðvitað stafar af því, að hann hefir ekki orðið tilfinnanlegur, en í Reykjavík er alt öðru máli að gegna: þar er upphæðin svo gífurlega há, að mismunurinn á aukaútsvörum og skattinum er nær því enginn. Munu flestir sammála um það, að bærinn sje ekki fær um að bera aukaútsvarsupphæðina tvöfalda, því að þótt tekjurnar sjeu hærri hjer en annarstaðar, þá er afkoman ekki það betri, að til mála geti komið, að bærinn geti borið slíkt.

Það fyrsta, sem lá fyrir, var því það að fá einhverja rjettingu á þessu, en það er svo langt frá því, að svo sje, því að stj.frv. fer einmitt í gagnstæða átt, þar sem það vill fella úr fjölda af lægstu gjaldendunum, sem áreiðanlega eru tiltölulega fleiri utan Reykjavíkur. Hjer í Reykjavík er það fullur þriðjungur, sem greiðir skatt af 500–1000 kr. skattskyldum tekjum, en þessir eiga að falla í burtu samkvæmt stjórnarfrv.

Við þetta út af fyrir sig hefi jeg lítið að athuga, því að það borgar sig varla að jafna þessum lága skatti niður og innheimta hann, en hjer kemur annað til greina, og það er, að fjöldi manna vill ekki verða „feldur úr skatti“ eins og kallað er.

Í brtt. mínum fer jeg því fram á það, að þeim verði haldið í skatti, en að skatturinn verði færður niður. Stj.frv. fer nú fram á það að lækka skattgjaldið af tekjum alt upp að 13–14 þús. kr., en hækka hann þar fyrir ofan. Er augljóst, þegar litið er til reynslu undanfarins árs, að sú hækkun lendir öll á Reykjavík. Hjer í Reykjavík hafa 57 gjaldendur goldið skatt af meira en 20 þús. kr. tekjum. Er þetta bein afleiðing þess, að hjer safnast atvinnureksturinn á færri manna hendur en annarsstaðar. Í stj.frv. felst því það, að skatturinn er lækkaður í öllum landshlutum utan Reykjavíkur, en hækkaður þar.

Brtt. hv. minni hluta hagga þessu ekki, en þó er jeg þakklátur hv. minni hl. fyrir eina breytingu, þá, að ákvæðið um, að 4% arður af hlutafje standi skattfrjálst í fjelaginu, sem stjórnin vill fella niður, á að haldast óbreytt eftir till. hans. — Það færi enda ekki vel, eftir allar umræðurnar um tvöfalda skattinn, ef menn vildu nú nema burtu það litla brot af sanngirni, sem hlutafjelögunum er nú sýnt, samanborið við önnur fjelög. — Það sanngjarna væri auðvitað, eftir því sem löggjöfin er nú orðin, að hlutafjelögin væru með öllu skattfrjáls, en tekjurnar skattlagðar hjá hluthöfum eingöngu.

Till. háttv. meiri hl. hafa heldur ekki í sjer fólgna nokkra rjettingu á þessum misfellum laganna. Að vísu er þar ein tillaga, sem fer í rjetta átt, en allir fundu að var sjálfsögð, sú, að menn greiddu ekki tekjuskatt af þeim hluta teknanna, sem fer í sveitarútsvar. Var sjálfsagt að laga þetta, enda skamt að leita fyrirmyndar, því að í Danmörku er svo fyrir mælt, að ekki skuli greiða skatt af þeim hluta teknanna, heldur er hann dreginn frá tekjunum áður en skatturinn er á lagður.

En meiri hl. tekur það með annari hendinni, sem hann gefur með hinni, því að hann vill lögleiða skattstiga, sem yfirleitt er hærri á lágu tekjunum en stj.frv. og miklu hærri á háu tekjunum en núgildandi lög heimila. Með öðrum orðum, hann vill láta ívilnunina, sem lægri gjaldendur fá, bitna á Reykjavík einni.

Fyrsta brtt. mín fer fram á nýjan skattstiga, og skal jeg nú skýra hann.

Jeg hefi fylgt meiri hl. í því að láta skattinn byrja á lágtekjunum, sem nú er í lögum. Svo er skattstiginn líkur því, sem hann er í stj.frv., upp að 10 þús. kr. tekjum, en eftir till. mínum skulu 500 kr. dregnar frá fyrir hvern fullorðinn mann einhleypan, en 1000 kr. fyrir hjón. Mismunurinn á mínum skattstiga og stj.frv. er sá, að minn er 5 kr. lægri upp að þessari takmörkun, en svo, þar fyrir ofan, fellur minn skattstigi næstum því saman við núgildandi skattstiga, en er þó nokkru hærri.

Auk þessa hefi jeg felt aftan af skattstiganum tekjur yfir 150000 kr., því að hærri tekjur er þýðingarlaust að hafa á pappírnum nú.

Það má nú segja, að það felist ekki mikil rjetting í mínum till. á órjettlætinu milli Reykjavíkur og annara landshluta, og það er satt. — En í áttina er þó farið.

Þá sný jeg mjer að frádráttarreglunum. Meiri hl. vill, að aukaútsvör verði dregin frá, og það er rjett. En meinið er, að hann skuli ekki hafa sýnt það með tölum, hvað miklu sú upphæð nemi, því ella má búast við, að það verði notað sem grýla og reynt að telja mönnum trú um, að það hafi miklu meiri lækkun í för með sjer á tekjum ríkissjóðs en það hefir. En sökum þess, hve stutt er síðan till. nefndarinnar komu út, treystist jeg ekki til að gefa svo nákvæma áætlun um það sem skyldi, en skal þó leitast við það að því er Reykjavík snertir. — Gjaldendur hjer í Reykjavík munu vera um 6500 og tekju- og eignarskattsupphæðin um 1100000 kr. eða tæpar 200 kr. á hvern gjaldanda að meðaltali. Mun láta nærri, að tekjuskatturinn verði um 150 kr. að meðaltali á hvern gjaldanda, eða sem svarar skatti af 5000 kr. Má þá sjá af þessu, hverju það munar, ef aukaútsvörin eru dregin af tekjunum áður en þær eru skattaðar. Skatturinn mundi lækka um h. u. b. 3%, ef miðað er við, að útsvörin sjeu yfirleitt jafnhá og tekjuskatturinn. En þetta mundi nema 30–40 þús. kr. hjer í Reykjavík, og sýnist, að þetta yrði ekki mikil lækkun á tekjuskattsupphæðinni í heild sinni. Einhverju getur hjer skakkað, en aldrei miklu. En jeg vil bæta því við, að alveg eins og um aukaútsvörin stendur á með þann tekjuskatt, sem greiddur hefir verið fyrir undanfarið ár. — Það er órjettmætt að láta gjaldandann greiða skatt af því, sem hann hefir goldið í skatt á undanförnu ári.

Er því auðsætt, að hvorttveggja þetta á að dragast frá áður en skatturinn er lagður á.

Þá vildi jeg svara hv. frsm. meiri hl. (MG) nokkrum orðum. Hann kom með þá mótbáru, að varhugavert væri að lækka skattinn, sökum þess, að fjárlögin væru nú samin með áætlun um tekjuskatt. Þessi fjárlög áætla tekjuskattinn 900000 kr., en eftir mjög erfitt ár 1921 verður þessi skattur 1500000 kr. Er vafalaust, að verði framtöl rjett 1922, þá verður upphæðin enn hærri. sökum þess, hve árið hefir verið betra. Það er því einsætt, að það er óhætt vegna fjárlaganna að gera einhverja breytingu á skattinum til lækkunar. En það er víst, að það borgar sig að nema burtu þá þyrnana við lög þessi, sem mest hafa stungið. Er það mjög áríðandi, að skatturinn verði sem vinsælastur, svo að framtölin verði sem rjettust.

Að því er snertir hina afarmiklu hækkun á tekjuskatti hárra gjaldenda, sem bæði stj.frv. og till. meiri hl. fara fram á, þá verð jeg að minna á það, að háar tekjur hjer á landi, þegar annars er um þær að ræða, stafa nær ávalt frá atvinnurekstri, en þess verður að gæta, að atvinnurekstur hjer á landi er yfirleitt mjög áhættusamur; þótt vel gangi í ár, getur vel svo farið, að hann gefi lítinn eða engan arð næsta eða jafnvel næstu ár. Eru því litlar líkur til þess, að gjaldendur fái staðist það, ef of mikið verður tekið af afgangi góðu áranna í þarfir lands og þjóðar, því þá verður of lítið eftir til að mæla vondu árunum með. Í sambandi við þetta má og ekki gleyma því, að búast má við, að gjöld til sveitarþarfa verði reiknuð eftir sömu stigtölum og gjöld til landssjóðs, og verður þá að margfalda tölur skattstigans með tveimur, svo öll gjaldaupphæðin komi fram. Maður, sem hefir ca. 20 þús. kr. tekjur á góðu ári, á samkvæmt frv. stjórnarinnar að láta af hendi 20% af þeim til landssjóðs, og annað eins má þá gera honum að gjalda til sveitar- eða bæjarþarfa, eða með öðrum orðum 2/5 hluta af tekjum sínum. Verður þetta því óhjákvæmilega til þess að draga úr löngun manna til að fást við áhættusaman atvinnurekstur, sem landinu þó er alláríðandi, að ekki falli niður.

Það væri því gott að hafa fyrir augum álit annara þjóða, sem lengur hafa búið við svipaða tekjuskattslöggjöf en vjer, t. d. Dana. Í Danmörku er af 20 þús. kr. tekjum goldið í skatt ca. 11—12% og til bæjar- eða sveitarþarfa ekki meira en þessu nemur, eða jafnvel minna; svo að á þessu stigi tekna er stighækkunin hjá oss, samkvæmt frv. stjórnarinnar, orðin tvisvar sinnum hraðgengari en samskonar stighækkun í Danmörku. Þetta eitt ætti að vera nóg til að benda á, hvort hjer sje ekki þegar of langt gengið í þessu efni; að öðru leyti mun jeg ekki fjölyrða um það að sinni, en vænti þess, að atvinnurekendur þeir, er þetta mál snertir, láti og eitthvað til sín heyra um þetta. Svo ætla jeg, til þess að taka alt með, að nefna það, að ef hjer eru til einhverjir menn, sem hafa 20–25 þús. kr. tekjur af eign, eða þar yfir, þá er það auðsætt, ef hjer á að fara mun lengra í skattaálögum en í nágrannalöndunum, að þá flytja þeir á brott hjeðan — flýja, og það er ekki til gagns fyrir landið í heild sinni. Hvað sem mönnunum líður, þá er það tap fyrir landið, því eignir þessara manna eru okkur eins góðar og hvert annað rekstrarfje, sem fyrir hendi er í landinu.

Í Danmörku eru nú skattar þessara manna svipaðir og þeir eru hjer nú, og mun það landinu fyrir bestu að láta við svo búið standa.