12.03.1923
Neðri deild: 18. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1249 í B-deild Alþingistíðinda. (1050)

59. mál, atkvæðagreiðsla fjarstaddra manna við alþingiskosningar

Flm. (Bjarni Jónsson):

Háttv. þingmenn munu sjá, að eigi þarf önnur meðmæli með þessu frv. en þau, er jeg gat um áður í sambandi við frv. á þskj. 87. Þetta er aðeins önnur hlið á sama hlut. Vjer viljum alls eigi hlíta því, að örvasa mönnum af aldri eða sjúkum gefist eigi kostur á að kjósa menn til þingfarar, og láta þá missa þannig af rjettindum, er löggjafinn hefir veitt þeim. Komið hefir fyrir hjer í Reykjavík, að mönnum hefir eigi veist kostur á að kjósa af þessum orsökum, þrátt fyrir hjálp bifreiðanna, og má þá nærri geta, hvernig vera muni í sveitum, þar sem víða er margra klukkustunda ferð til kjörstaðar, og er gamalmennum þá oft torfært eða ókleift með öllu að neyta þessa rjettar síns, þótt fegnir vildu. Get jeg nefnt sem dæmi, að síðast er jeg var kosinn, var á næsta bæ við kjörstað kona ein áttræð að aldri, sú er jafnan hafði mjer fylgi veitt við kosningar, og vildi hún nú enn svo gera, en mátti eigi fyrir elli sakir komast þessa bæjarleið. Varð hún þar af rjettinum, en jeg af atkvæðinu, og kom þó eigi að sök í það sinn. Er þetta aðeins eitt dæmi, en hver af háttv. þm. mun þekkja mörg slík. Auk þess, sem jeg gat um í hinni fyrri ræðu minni um skyldu þings og stjórnar til þess að gera öllum kjósendum jafnt undir höfði, má og hjer minna á það, að margir hinna hrumu, gömlu manna hafa áður verið sveitarfrömuðir, og ef til vill þingskörungar, en fá nú eigi kosið, sökum skorts á þessu ákvæði. Hygg jeg, að mörgum háttv. þingmanninum, er nú situr hjer, þætti ilt til þess að vita, ef síðar færi svo, að hann kæmist eigi á kjörstað sökum elli eða sjúkleika, og svo stæði á, að riðið gæti á atkvæði hans, hvort vitur maður og góður yrði kjörinn eða óvitur og háskasamlegur. Þarf jeg eigi lengur að brýna þetta fyrir hv. þm. Munu þeir vilja, eigi síður en jeg, veita kjósendum sínum færi á að neyta rjettar þess, er löggjafinn hefir veitt þeim. Æski jeg þess, að frv. gangi til 2. umr. og til allsherjamefndar.