13.04.1923
Efri deild: 39. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1264 í B-deild Alþingistíðinda. (1081)

59. mál, atkvæðagreiðsla fjarstaddra manna við alþingiskosningar

Frsm. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):

Frv. lýtur að því að gera þeim ljettara að neyta kosningarrjettar síns, sem ekki eru ferðafærir til kjörstaðar vegna elli eða vanheilsu. Nefndin hefir aðhylst stefnu frv. og telur rjett að gera mönnum mögulegt að neyta þess rjettar, sem þeim er heimilaður á annað borð. Það er enginn vafi á því, að sjúkir menn og hrumir hafa oft orðið af þessum rjetti í raun og veru, og úr því vill frv. bæta. Hins vegar þykir nefndinni eðlilegt, að slík forföll sjeu sönnuð með læknisvottorði, þar sem því verður við komið, annars með hreppstjóravottorði; og hefir nefndin því borið fram brtt. í þá átt.

Annað þótti nefndinni athugavert, og það var hvenær þessir menn fengju að kjósa. Eftir frv. leit helst út fyrir, að það mætti fara að smala þessum atkv. þegar er framboðsfrestur væri útrunninn, en það væri óheppilegt, og sumir, sem þá væru veikir, gætu verið orðnir heilbrigðir á kjördegi. Nefndin hefir því borið fram brtt. í þá átt, að þessi atkvæði skuli greidd daginn fyrir kjördag, ef kjósandi á heima á kjörstaðnum, en ella 2 dögum fyrir kjördag.

Þá hefir nefndin viljað breyta ákvæðinu um aðstoð þá, sem þessum mönnum verður látin í tje, og sú breyting er aðallega gerð til þess að samræma ákvæði frv. við ákvæði kosningalaganna. Þau eru á þann hátt, að einhver úr kjörstjórninni á að veita aðstoð á kjörstaðnum, ef hennar er þörf, og má kjósandi velja á milli mannanna. Það má deila um það, hvort þetta sje heppilegt eða ekki. Það má segja, að eðlilegast væri, að kjósandi veldi sjálfur og væri ekki bundinn við kjörstjórnina. Jeg hefi vitað merkan mann ganga frá kjörborði án þess að greiða atkvæði, vegna þess að hann gat engum treyst af þeim, sem í kjörstjórn voru. Þetta getur komið oft fyrir, og er hart aðgöngu fyrir kjósendur að verða af því að neyta kosningarrjettar af þessum ástæðum. En hvað sem því líður, þá er ákvæðið á þessa leið, og meðan því er ekki breytt fer best á því, að ákvæði, sem lúta að svipuðu efni, sjeu í samræmi við það. Þess vegna leggur nefndin til, að sá, sem vottorðið gefur, sje látinn tilnefna aðstoðarmanninn, en í praksis mundi það oftast verða sá, sem kjósandi kysi helst.

Nefndin hefir ekki viljað fara lengra í breytingarnar, og leggur því til, að 3. og 4. gr. sjeu feldar niður. Það verður að fara varlega í það að flytja kosningar um of frá kjörstaðnum, því svo er tilætlast og heppilegast, að þar fari þær aðallega fram.