07.03.1923
Neðri deild: 14. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í B-deild Alþingistíðinda. (109)
13. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. minni hl. (Þorleifur Guðmundsson):
Jeg get verið fljótur með mína ræðu, ekki síst þar sem umræðurnar eru orðnar ærið langar, og leiðinlegar sjálf sagt líka, að því er mörgum mun finnast. Jeg skal samt byrja á hv. 3. þm. Reykv. (JÞ), sem talaði mikið skynsamlega og rökfast. eins og hans er vandi, þótt jeg sje hins vegar ekki sammála honum í öllum atriðum, þar sem hann er í rauninni málsvari þeirra manna, sem auðveldast eiga með að borga. En þar sem hann talar um það t. d., að erfitt sje að borga 20% af 25 þús. kr. árstekjum, þá verð jeg fyrir mitt leyti þvert á móti að segja, að það sje auðveldara fyrir slíkan 25 þús. króna mann að borga 20% heldur en fyrir þann, sem aðeins hefir 1000 kr. tæpar, að borga ekki neitt.
Þá skal jeg snúa mjer að hv. 1. þm. Reykv. (JakM). Það hefir verið mikið um það talað, hvað útsvörin í Reykjavík væru orðin há, og er það sjálfsagt rjett. En það eitt út af fyrir sig er engin sönnun þess, að rjettlátt sje að draga þau frá framtalinu til ríkisskattsins. Því ef draga á há útsvör frá skattstofninum ofan á allan annan frádrátt, er hætt við því, að ekki verði altaf mikið eftir, svo að ríkið fái þá ekki mikið. En það er nú sem stendur eitt aðalatriði þessa máls í mínum augum, að ríkissjóður má alls ekki við því að missa á þann hátt tekjur. Auk þess kæmi þessi frádráttur helst fram hjá þeim, sem mestar hafa tekjurnar og þar af leiðandi mest gjaldþolið, og þess vegna munar mest um fyrir ríkissjóðinn og er tilfinnanlegast að missa úr skatti. En það tel jeg einmitt rjetta stefnu, að efnuðustu mennirnir eigi að bera þyngsta skattinn.
Hvað frádráttarreglurnar snertir, þá geta þær aldrei, eins og jeg hefi áður sagt, orðið annað en handahóf, og hygg jeg, að sýna megi rjettilega fram á það eftir frádráttarreglum meiri hlutans, að dæmið, sem háttv. þm. tók með hjónin, sem ættu tvö börn og hefðu 2400 kr. tekjur, mundu eftir skattstiga og frádráttarreglum meiri hl. gjalda nokkuð minna heldur en eftir fyrirkomulagi stjórnarfrv., þá er þarna gripið í sjerstakt dæmi, sem auðveldlega getur breyst. Ef við t. d. hjeldum áfram og ljetum þessi sömu hjón, sem hv. meiri hl. hefir þóknast að láta eiga tvö börn, máli sínu til styrktar, eignast þriðja barnið í viðbót, þá yrðu þessi hjón einnig skattfrjáls eftir skattstiga stj.frv. Sýnir þetta því, að jeg hefi haldið því rjetti,ega fram, að ekki er hægt að finna frádráttarreglur svo öruggar, að ekki geti kent misrjettis einhversstaðar.
Hins vegar verð jeg að mótmæla sjerstaklega þeim ummælum sama hv. þm. (MG) um afstöðu mína til þessara mála, þar sem hann sagði, að jeg hefði sagt, að jeg fylgdi stj.frv. í aðalatriðunum aðeins af því, að það væri frá stjórninni. Það er nú hvorttveggja, að það er ekkert meiri sanngirni af honum að segja þetta um mig en ef jeg segði, að hann væri á móti sama frv. aðeins af því, að það er frá núverandi stjórn, en ekki t. d. frá honum sjálfum. Sannleikurinn er sá, að jeg hefi þegar í fyrri ræðu minni gert nákvæma grein fyrir afstöðu minni og rökstutt skoðanir minni hl., alveg án nokkurs tillits til flokks eða stjórnarfylgis, aðeins út frá því, hvað sanngjarnast og samviskusamlegast mundi vera, eins og skylda er.
Það, sem sagt hefir verið um kaupgjald vinnufólks í sveitum. þarf jeg ekki að fjölyrða mikið um. Það getur verið, að þessu sje eitthvað öðruvísi varið í bygðarlögum hv. frsm. meiri hl. (MG) en þar sem jeg þekki best til, og trúi jeg því þó tæplega, að munurinn sje mikill. Að minsta kosti þori jeg að fullyrða, að minna en 1000 kr. hafi slíkt fólk alment ekki, ef það á annað borð vinnur fyrir sjer, sem kallað er. Og menn mega ekki miða aðeins við það, sem það fær í beinhörðum peningum, því auðvitað kostar eitthvað það fæði, húsnæði og þjónusta, sem það fær. Hitt er alt annað mál, að þetta getur verið framkvæmt á mismunandi hátt hjá mismunandi skattanefndum. þannig að sumar reikna fæði lægra en aðrar o. s. frv. En ef sanngjarnlega er í sakirnar farið, er það áreiðanlegt, að minna en 1000 kr. er ekki hægt að fá út úr þessu, eða að minsta kosti vildi jeg gjarnan fá upplýsingar um það, hvar þetta afskaplega ódýra vinnufólk er að fá, svo mínir sveitungar gætu notið góðs af því líka, því hjá okkur er það ekki til og líklega er það ekki til annarsstaðar heldur.
Að öðru leyti þarf jeg ekki að svara ræðum hv. andmælenda minna, en get vísað til nál. og framsöguræðu minnar, enda hefir í rauninni ekkert komið fram, sem hnekki því, sem þar er sagt, og treysti jeg svo sannsýni og sanngirni þessarar háttv. deildar, að hún sjái það, þrátt fyrir ýms an óverulegan skoðanamun, að till. okkar minni hl. fara í rjetta stefnu og sjeu ríkissjóði til mestra heilla og jafnframt almenningi til sjávar og sveita til mestrar sanngirni, og þá er aðalatriðið unnið. En það, sem aðallega vakti fyrir minni hl., þegar hann ákvað það að fylgja stjfrv. óbreyttu, var sú sanngjarna leið, sem það virðist fara, sem sje að að minsta kosti verði sveitarómagar ekki framvegis látnir gjalda skatt til ríkissjóðs. Því sá, sem ekki getur sjeð fyrir lífsnauðsynjum sínum, hlýtur að fá það, sem hann þarf í skattinn, annnaðhvort hjá sveitarfjelagi sínu eða þeim öðrum, er ala önn fyrir honum.