25.04.1923
Neðri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1337 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)
139. mál, fjáraukalög 1923
Forsætisráðherra (SE):
Jeg vil taka fram til frekari skýringar viðvíkjandi brtt. II a á þskj. 405. um fjárveitingu til sjúkrahúss og læknisbústaðar á Blönduósi, að það verð, sem hjer er miðað við á húsinu, er mjög lágt. Húsið er metið á 52 þús. kr., en verðið, sem sýslan galt fyrir það, er að mun hærra. Held jeg líka, að öll fjvn. hafi verið sammála um þessa till.
Jeg vil halda mjer við það, er jeg hefi áður getið um, að jeg ætla, að erfitt muni vera að fá 1/3 kostnaðar við sjóvarnargarðinn á Siglufirði greiddan af kaupstaðnum. Vitanlega er það rjett, að það er landið, sem setur Siglfirðingum skilyrði, en þeir ekki landinu. En þess ber að gæta, að Siglufjarðareyri er ríkiseign, og er það ekki einskisvert fyrir landið, hvernig um þá eign þess fer.
Jeg vil leyfa mjer að þakka háttv. 4. þm. Reykv. (MJ) fyrir það, hve vel hann tók í brtt. mína, um að veita 15000 kr. til orðabókar Sigfúsar Blöndals. Hann talaði með svo miklum skilningi á málinu og veitti því svo mikinn stuðning, að mjer ætti að nægja að vísa til orða hans og þess, sem jeg sagði í gær. Þykist jeg vita, að háttv. deild muni skilja, hvílíkt þjóðnytjamál er hjer á ferðinni.
Þá vil jeg minnast á IX. brtt. á þskj. 405, um 5000 kr. til þess að bæta íslenskum námsmönnum erlendis upp gengismun á fjársendingum heiman að. Háttv. þm. Borgf. (PO) mælti ekki á móti þessum lið, en kvað mundu veitast örðugt að láta þennan styrk koma rjett niður. Stjórnin mundi gera sjer alt far um, að þessum styrk yrði úthlutað sem rjettilegast, og gæti hún snúið sjer til trúnaðarmanna stúdenta, þeirrar nefndar, sem stýrir málefnum þeirra. Treysti jeg því fastlega, að sú nefnd mundi gefa stjórninni sem bestar upplýsingar í þessu efni. (PO: Hefir gengismunur verið greiddur af námsstyrk?). Mjer er ekki fullkunnugt um það, því að það kemur ekki undir mína deild, en jeg hygg þó, að svo hafi verið.
Jeg leyfi mjer enn að þakka hv. 4. þm. Reykv. (MJ) fyrir það, hve vel hann tók undir þessa tillögu. Enginn mun vera í vafa um það, að það er alveg nauðsynlegt, að ýmsir stúdentar stundi nám erlendis. En þeir eiga mjög erfitt uppdráttar allflestir. Í fyrsta lagi er mjög örðugt fyrir þá að afla sjer nauðsynlegs fjár, og við þetta bætist hinn mikli gengismunur, sem þeir verða að greiða. Þeir, sem stundað hafa nám í Kaupmannahöfn meðan gengismunur var enginn, geta best dæmt um þetta. Jeg hefi fengið vitneskju um, að meðal stúdenta í Kaupmannahöfn gengur yfir hreinasta lestraralda. Stúdentar, sem þar eru, leggja óvenjulega mikla alúð við nám sitt, og er því meiri ástæða til þess að rjetta þeim hjálparhönd og veita þeim þessa litlu upphæð, meðan þeir eru að búa sig undir að taka við störfum fyrir þjóðina. Jeg vona því, að þessari brtt. verði vel tekið, en sjálfsagt er að gæta allrar sanngirni við úthlutun þessa fjár.
Jeg tók fram í fyrir háttv. frsm. (MP). þegar hann sagði, að fjvn. mundi snúa styrkjum til ýmsra námsmanna, sem veittir hafa verið stundum í fjárlögum, upp í lánsheimild þeim til handa. Jeg játa, að jeg hefi ekki rannsakað allar tryggingar, sem ríkissjóður heimtar fyrir lánum, en venjulega mun krafist fasteignatryggingar, nema þegar um ábyrgð fyrir sveitarfjelög er að ræða. Það kom einu sinni fyrir, að manni nokkrum var, eftir tillögum fjvn., veitt lán til þess að nema umbúðasmíði. Var þá krafist fasteignatryggingar, og er mjer kunnugt um, að maður þessi átti ákaflega erfitt með að fá slíka tryggingu. Ef ætlast er til, að fasteignatryggingar verði heimtaðar af stúdentum, yrðu þessar ábyrgðir algerlega gagnslausar. Ef þessir menn eiga nóg af veðum, þyrftu þeir alls ekki að snúa sjer til Alþingis. Jeg vil taka þetta greinilega fram, til þess að fjvn. gefist tilefni til að athuga. hvort hún vill gefa bendingu í þá átt, að ekki þurfi í þessum tilfellum að ganga eins ríkt eftir tryggingunum og venja er til.