25.04.1923
Neðri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1354 í B-deild Alþingistíðinda. (1131)

139. mál, fjáraukalög 1923

Pjetur Ottesen:

Það er aðeins stutt athugasemd út af þeim andmælum, sem tillaga mín hefir mætt. Má segja, að meiri hluti fjvn. hafi þótt mikils við þurfa, þar sem tveir gerðust framsögumenn gegn þessari tillögu; en það voru þeir hv. þm. Dala. (BJ) og hv. þm. Str. (MP). Það geta þó tæplega verið skiftar skoðanir um það, að fyrverandi fjármálaráðherra hafi ekki haft neina heimild til þess að ávísa sjer úr ríkissjóði þessari húsaleiguupphæð, og hið sama kom fram hjá háttv. þm. Dala. (BJ). Hann játaði, að hann hefði ekki sjálfur viljað gera þetta og mundi fyllilega hafa ráðið hverjum sem hefði verið frá því að aðhafast slíkt. Því undarlegra er að bregða mjer um svigurmæli. Það er sjálfsagt að krefjast endurgreiðslu á þessu fje, og jeg held því fram, að sú krafa sje einmitt fram komin á rjettum stað og tíma. Þar sem háttv. þm. Dala. (BJ) talaði í þessu sambandi um ofsókn frá minni hálfu, mætti fremur segja, að hann væri að ofsækja alment velsæmi með mótmælum sínum gegn þessari tillögu. Því að jeg geri ekki ráð fyrir, að hann líti svo á, að opinberir embættismenn eigi að fara þannig að, eða afla sjer aukatekna á þennan hátt.

Hinn eiginlegi frsm. fjvn., háttv. þm. Str. (MP), sagði, að þessi ráðherra hefði haft aðra aðstöðu og lakari en hinir ráðherrarnir. Jeg held, að hún hafi verið sú sama í því, að honum bæri að rækja trúlega stöðu sína og starf, og því meiri ástæða hefði verið til þess, að hann hefði skilið stöðu sína svo, þar sem honum var falin umsjá með fje ríkisins. Jeg vil geta þess, að hæstv. stjórn hefir ekki minst á þetta mál nje látið þessa tillögu til sín taka, og af því dreg jeg, að fyrverandi ráðherra hafi ekki sjeð sóma sinn í því að greiða þetta fje áður en hann vjek úr ráðherrasessi. Jeg veit, að hæstv. stjórn muni telja sig fúsa á að krefja inn þetta fje. Deildarmenn munu minnast þess, að ráðherrarnir, bæði hæstv. forsrh. (SE) og atvrh. (KIJ), neyttu um daginn fyrsta færis til að skýra frá, að þeir hefðu ekki verið í vitorði með fjármálaráðherranum um þetta; hefi jeg orð þeirra ráðherranna fyrir því, að þeir álíta þetta óhæfuverk.

Jeg er ákveðinn í því að láta þessa tillögu ganga til atkvæða deildarmanna; kemur þá í ljós, hve mikla samúð þessi fjölþreifni ráðherrans í fjehirslu ríkisins hefir í þessari háttv. deild.

Hæstv. forsrh. (SE) mintist á gengismun á styrknum til stúdenta. Jeg varpaði fram spurningu um, hvort gengismunur hefði verið greiddur af stúdentastyrknum 1922, en fjekk ekkert svar við því. En jeg verð þó að ætla, að svo hafi verið. Þannig hefir 8000 kr. styrkurinn, sem ákveðinn var í fjárlögum, hækkað til muna; og þar eð þetta hefir verið gert, sem jeg ætla, þá er það í algerðu heimildarleysi. Og jeg tel ekki rjett nje ástæðu til að sinna tillögu hæstv. ráðherra um þetta efni. Enda er þá farið inn á mjög hæpna leið.