25.04.1923
Neðri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1369 í B-deild Alþingistíðinda. (1139)
139. mál, fjáraukalög 1923
Þorsteinn Jónsson:
Jeg skal aðeins segja örfá orð, út af ummælum, sem fjellu hjá háttv. frsm. fjvn. (MP) út af till. hv. þm. Borgf. (PO). Hann taldi það skyldu þeirra manna, sem hefðu verið í flokki með fyrv. fjrh. (MagnJ), að verja hann. Mjer er nú ekki annað kunnugt en að þeir tveir háttv. þm. (MP og BJ), sem hafa varið gerðir hans í þessu máli, væru stuðningsmenn hans. Þeir, eins og Framsóknarflokksmenn, skoruðu á núverandi forsætisráðherra að mynda stjórn og lofuðu honum stuðningi. Forsætisráðherra valdi svo hinn nú nýfráfarna fjármálaráðherra í ráðuneytið. Framsóknarflokkurinn útnefndi hann ekki, en ráðherrann fjekk inntöku í flokkinn eftir að hann var kominn í ráðuneytið. En þótt hann gerðist flokksmaður Framsóknarflokksins, bar sá flokkur ekki neina sjerstaka ábyrgð á honum, fremur en aðrir þeir menn, er stóðu að myndun núverandi stjórnar. Og viðvíkjandi þeirri skyldu, sem háttv. frsm. (MP) taldi, að flokkurinn hefði til að verja hann árásum, þá vil jeg taka það fram, að við flokksmenn hans höfum ekki sjeð þörf á frekari röksemdum en fram eru komnar honum til varnar. Annars lít jeg svo á, ef um athugaverðar stjórnargerðir er að ræða, að flokksmönnum stjórnarinnar beri engin skylda til að verja hana fyrir þær. Þeim ber aðeins skylda til að verja hana fyrir ranglátum árásum.
Jeg ætla hjer ekkert að rökræða þetta húsaleigumál fyrv. fjrh. frekar. En jeg tel hjer ekki um rjetta aðferð að ræða hjá háttv. þm. Borgf. (PO). Ef þingið vill ákæra fyrv. fjrh. þá er landsdómsleiðin rjett, eins og háttv. þm. Mýra. (PÞ) hefir tekið fram. En fyr en sá dómur væri fallinn gegn ráðherranum er ekki hægt að innheimta fje þetta.