01.05.1923
Neðri deild: 54. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1413 í B-deild Alþingistíðinda. (1160)

139. mál, fjáraukalög 1923

Eiríkur Einarsson:

Jeg hafði ekki ætlað mjer aftur til máls að taka, en það voru óverðskulduð andmæli gegn sjúkraskýlinu austur frá, sem gera mjer það nauðsynlegt að segja nokkur orð.

Jeg vil þá nota tækifærið og mæla með því, að breytingartill. hæstv. atvinnumálaráðherra (KIJ) um styrk til ullariðnaðarnemandans nái framgangi. Gleður það mig, að hæstv. ráðherra skuli halda svona fast fram þessu máli, og vona jeg, að það megi skoða sem vilyrði um stuðning hans við málefnið og að hann láti ekki sitja við einsamlan námsstyrkinn. Það þarf vitanlega meira með.

Um sjúkraskýlismálið skal jeg segja það, að mjer þykir allundarlegt, að verið skuli að andmæla því, þar sem vitanlegt er, að stefnan er sú yfirleitt, að styrkja embættismenn í þessum efnum, t. d. presta til bygginga á prestssetrum o. s. frv., og hví skyldi þá ekki eins mega styrkja lækna og hjeruðin, er að þeim búa; það er líka margsýndur vilji þingsins að vilja gera það, þótt Grímsneshjerað eigi að verða olnbogabarn í þeim efnum.

Jeg þarf annars ekki að leiða rök að því, að það er lífsnauðsyn að styrkja sjúkraskýlin, enda er landlæknir þessu eindregið meðmæltur. Sveitarmenn þeir, sem í hlut eiga, hafa líka þegar lagt í mikinn kostnað vegna þessa og eru yfirleitt lítt efnum búnir, og gerir það hjálpina enn þá nauðsynlegri.

Út af því, sem sagt hefir verið um Geysishúsið í þessu sambandi, vil jeg taka það eitt fram, að alt of mikið er gert úr því, hvað það hafi verið mikils virði og hvað mikið hafi verið hægt að nota úr því til sjúkraskýlisbyggingarinnar. Jeg veit með vissu, að Geysishúsið hrökk skamt, hvaða sögur sem um það kunna að ganga, en það er ávalt hæpið að trúa slíku sem því, er hjer í deildinni hefir verið sagt um málið; er það mjög litað og rangt, enda er þetta orðið illindamál og notað til rógs. Það má líka taka tillit til þess, hvað hjer er farið fram á lága upphæð, samanborið við ýmsar aðrar svipaðar veitingar. Gæti þá Geysishúsið komið upp í þann mismun. eða hvað þetta sjúkraskýli fær lægri fjárveitingu en sum önnur. Vænti jeg svo hinna bestu undirtekta undir málið.