01.05.1923
Neðri deild: 54. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1415 í B-deild Alþingistíðinda. (1161)
139. mál, fjáraukalög 1923
Jón Þorláksson:
Hv. 1. þm. Árn. (EE) sagði, að Geysishúsið væri útrætt mál. Hann sagði þetta snemma í ræðu sinni, en með því, sem hann sagði síðar í ræðunni, mótmælti hann því, er hann hafði áður sagt. En það hefði getað verið útrætt. ef hann hefði ekki borið fram þessa brtt. sína um 3000 kr. styrk til sjúkraskýlis og læknisbústaðar á læknissetri í Grímsneshjeraði.
Fer hann hjer í raun og veru fram á, að söluverð Geysishússins, sem var 3000 kr., sje gefið eftir, og með því sje þetta fræga verk fullkomnað.
Álít jeg, að ekki sje rjett að gera þetta. Er nóg, að þetta lán til læknissetursins var illa fengið í upphafi, þó að þetta bætist ekki við. Stendur nú yfir bygging annars stærra sjúkraskýlis í sama hjeraði, en því er ekki enn lokið, sem stafar af því, að sýslan hefir ekki uppfylt þau skilyrði, sem henni ber.
En meðan svona stendur, að sýslan stendur ekki í skilum, er ekki rjett að veita styrk til annars sjúkrahúss í sýslunni. Má vera, að þetta þyki hart, en það er rjett, þegar ekki er fullnægt rjettmætum kvöðum.
Annars ætla jeg ekki að tala um einstaka liði frv., en vil nota mjer þann rjett, sem leyfður er við þessa umr. til að fara um frv. sem heild nokkrum orðum.
Það er nú svo komið, að þessi fjáraukalög fyrir 1923 nema eftir frv. frá 2. umr. tæplega 280 þús. kr., og nú liggur fyrir til 3. umr. 120 þús. kr. viðbót. Og ef bornar eru saman brtt. og frv. sjálft, þá fæ jeg ekki sjeð, að rjettmætt sje að fella brtt. allflestar, ef frv. sjálft á að standa.
Frv. þetta á enn eftir langa göngu. þrjár umr. í Ed. og líklega eina í hvorri deild. og samkv. reynslunni mun óhætt að fullyrða, að gjöld frv. muni aukast við hverja umr. Er hjer því stofnað til útgjalda árið 1923, sem ekki er enn sjeð fyrir endann á, en sem munu líklega nálgast meir þá miljón kr. en miljón kr. Hefir margt verið sagt til aðfinningar hæstv. fjrh. (MagnJ) og jeg verið einn þar í hópi, en maklegt er að geta þess honum til lofs, að hann vildi ekki leggja fram frv. til fjáraukalaga fyrir þetta þing. Sá hann, að ef það yrði gert, þá mundu útgjöldin á árinu 1923 aukast svo, að afkoman yrði ekki glæsileg. En svo kom háttv. fjvn. og þröngvaði stjórninni til að koma fram með frv. Get jeg að vísu ekki láð stjórninni, þótt hún ljeti undan, en meira hefði jeg metið hana, ef hún hefði haft manndóm í sjer til þess að neita því og lofa háttv. þm. Dala. (BJ) eða einhverjum öðrum að koma með það.
En háttv. fjvn. mun nú vera farið að óra fyrir afleiðingunum af þessari kröfu sinni, enda má segja, bæði vegna þessarar kröfu hennar og meðferðar á frv., að ábyrgðin liggi aðallega á herðum hennar.
Jeg vil minna á, að á síðasta þingi. 1922, var líka rætt um, að stjórnin legði fram fjáraukalög fyrir það ár, en þáverandi stjórn, og sjerstaklega fyrv. fjrh., háttv. 1. þm. Skagf. (MG), neitaði að gera það. Mundi, ef frv. hefði komið, hafa komið þar útgjaldaauki, sem ríkissjóður hefði ekki verið viðbúinn að taka á sig,
Nú er aftur horfið frá þessari reglu fyrv. stjórnar, og má búast við, að áfram verði haldið. Liggja engar sjerstakar ástæður fyrir nú, er geri þetta nauðsynlegt, aðrar en þær, sem ávalt munu verða fyrir hendi meðan afstaða þingtímans til fjárhagstímabilsins helst óbreytt.
Á þinginu 1922 bar jeg fram frv., er miðaði að því að koma í veg fyrir þetta. Fór frv. fram á, að fjárhagstímabilið byrjaði þegar eftir þinglok, svo að hvert þing fengi það hlutverk að semja fjárlög fyrir það tímabil, er byrjaði frá þinglokum; hefði þá ekki þurft að hafa tvenn fjárlög fyrir hvert tímabil, eins og nú verður í reyndinni. En þetta frv. fann ekki náð fyrir augum hv. deildar, og er rjett að minna á, að það var formaður fjvn., háttv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ), sem átti mestan þáttinn í því að fella það.
En vera má, að óþarfi sje að vera að gera að umtalsefni þessa 1/2 miljón kr. viðbót, einkum þar sem ekkert heyrist frá hæstv. fjrh. (KIJ), sem þetta ætti þó að snerta mest.
Er gleðilegt, ef ástandið hefir breyst til batnaðar eftir að hæstv. fjrh. (KIJ) lýsti ástandinu hjer í þinginu fyrir nokkrum dögum. Sagði hann þá, að lítið fje væri handbært í sjóði og tæpast svo mikið, sem þessari viðbót nemur. Hefði útlitið aldrei verið svo svart sem nú, hvað þetta snerti. En jeg þykist vita, að þetta muni eitthvað breytt, úr því hæstv. fjrh. (KIJ) gerir engar aths., en það gleddi mig mikið, ef hæstv. ráðherra vildi skýra frá þessu. Og heyri jeg það, að eitthvað hafi ræst úr, mun jeg greiða atkvæði með frv., en ella neyðist jeg til að greiða atkvæði á móti frv. í heild. Auðvitað er ljóst, að stjórnin verður að inna af hendi, upp á aukafjárveitingu eftir á, það, sem nauðsynlegt er til að halda við mannvirkjum, sem ekki má fresta viðgerð á. En þetta eru engin vandræði og ekkert við það að athuga, þótt stjórnin leiti ekki heimildar fyrir þessu hjá þinginu fyr en eftir á.
Er þetta aðeins örlítill hluti þess, er nú stendur í fjáraukalagafrv. og brtt., en flest af hinu má bíða til ársins 1924.