01.05.1923
Neðri deild: 54. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1419 í B-deild Alþingistíðinda. (1163)
139. mál, fjáraukalög 1923
Pjetur Ottesen:
Það vildi svo til áðan, þegar jeg gerði stutta aths. við 3 liði, að það varð til þess að hleypa á stað 2 af mestu mælskugörpum þingsins, og þó sjerstaklega öðrum þeirra, sem sje hæstv. forsrh. (SE). Var sem það snerti undarlega strengi í hæstv. forsrh., er jeg mintist á úthlutun skáldastyrksins.
Tók hann aðfinslur mínar mjög óstint upp, sem bygst hefir á því, að hann hefir fundið til óskeikulleikans hjá sjálfum sjer í því efni. Talaði hann með miklum myndugleik um aðfinslur mínar, og þarf satt að segja ekki lítið álit á fjölhæfni sinni og listasmekk til þess að geta talað svo sem hann gerði.
Kemur þetta sjerstaklega í ljós, er athugað er, hvernig styrknum var úthlutað. Hann fengu 3 rithöfundar, 6 söngmenn, 3 myndhöggvarar, 6 málarar, 1 tónskáld og 1 leikkona. Sjá menn, að það þarf ekki neina smáræðis listhæfileika til að dæma um svo fjölbreyttar listir, svo að ekki sje hægt að finna neitt að.
Af þeim 18, sem að þessu sinni hafa orðið þyngstir á metaskálunum, þessari gullvog, sem hæstv. forsrh. (SE) metur hæfileikana á, sjest, að hlutur rithöfundanna hefir orðið harla ljettur.
Já, mikill er nú munurinn frá því, sem áður var, er íslenska þjóðin bar ægishjálm á sviði bókmentanna og ritlistarinnar, en nú er því svo komið, að ekki nema 3 rithöfundar hafa, að dómi forsætisráðherrans, verðleika til styrks á móti t. d. 6 söngmönnum og 6 málurum. Jeg hefi rifjað þetta upp til þess að auka sem mest á ánægju hæstv. forsætisráðherra yfir þessu listfenga afreki hans. En það vil jeg segja út af ummælum hæstv. forsætis ráðherra um gagnrýni mína á því, að hann hefði í þessari úthlutun alveg gengið fram hjá Jakobi skáldi Thorarensen, að það tel jeg harla undarlega niðurstöðu og fullkominn vott þess, að ráðherrann setji sig á fullháan hest, er hann þykist óskeikull um þessa hluti.
Hæstv. forsrh. (SE) skaut því að mjer að bera fram brtt. um að auka skáldastyrkinn, til þess að bæta úr þörfinni og misrjettinu; en því er til að svara af minni hálfu, bæði að jeg hefi ekki haft mikla trú á þýðingu þessara fjárveitinga yfirleitt og álít, að verja megi fjenu betur á annan hátt, þó að jeg hins vegar láti mjer ekki á sama standa, hvernig því er skift, úr því það er nú veitt á annað borð, og að jeg vil ekki, þrátt fyrir hið mikla álit hæstv. forsrh. á sjálfum sjer, leggja meira fje á þessar handahófs metaskálar hans. En nú er aðalskemtunin eftir hjá hæstv. ráðherra; hann gat sem sje um það áðan, að hann ætlaði að skemta deildinni með því að lesa upp kvæði eftir eitt skáldið, sem styrkinn fjekk, og er það vitanlega í því skyni gert, að færa deildinni sönnur á rjettmæti gerða sinna, og jeg sje, að hann er með „Svartar fjaðrir“ fyrir framan sig, og þá vil jeg skjóta því til ráðherrans, að hann lesi einnig upp kvæði eftir Jakob Thorarensen til samanburðar. því annars sannar upplesturinn vitanlega ekki neitt. (MJ: Væri það ekki betra í Nýja bíó?). Jeg læt hæstv. ráðherra einan um það að velja stað og stund til upplestrarins; jeg er nú hræddur um, að hann mundi taka það óstint upp fyrir mjer, ef jeg færi nú líka að kritisera það.
Háttv. 1. þm. Árn. (EE) brást reiður við því, að jeg, eins og tveir aðrir háttv. þm., hefi farið að tala um söluna á Geysishúsinu í sambandi við till. hans á þskj. 491, um styrk til sjúkraskýlis í Grímsneshjeraði. Hann talaði um, að þetta væri fólskukergja á móti þessu læknissetri. En það er af hans eigin fólskukergju, að þetta umtal hefir nú orðið, því hann hefir sjálfur leitt asnann inn í herbúðirnar, með því að bera nú fram þessa andvana fæddu brtt. sína.