01.05.1923
Neðri deild: 54. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)
139. mál, fjáraukalög 1923
Pjetur Þórðarson:
Það lítur svo út, sem til mála geti komið að samþykkja flestar þær brtt., sem hjer liggja fyrir, þó að óvænlega hafi horft með það í fyrstu. Annars skal jeg ekki fara frekar út í það, en minnast aftur á brtt. á þskj. 515, um 1000 kr. styrk til Kristjáns Jónassonar í Borgarnesi, til þess að bæta honum að nokkru skaða þann, er hann beið af sóttvarnarráðstöfunum veturinn 1921.
Það hafa flestir háttv. þm. viðurkent, að sanngjarnt væri að bæta Kristjáni skaða þennan að einhverju. En það, sem haft hefir verið á móti, er, að hann geti ekki heimtað tjón það, er hann beið af sóttvarnarráðstöfunum þessum, með lögsókn. Og því sje sjálfsagt að notfæra sjer það, þó að öll sanngirni og rjettlætistilfinning segi annað. En jeg vænti þess fastlega af þessari háttv. deild, að hún samþykki upphæð þessa aftur, úr því að hún var á annað borð einu sinni búin að því. Og ekki síður þegar þess er gætt, að þetta er fátækur maður, sem hjer á hlut að máli, og var lagður veikur inn á spítala hjer í gærkveldi.