07.05.1923
Efri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1438 í B-deild Alþingistíðinda. (1179)
139. mál, fjáraukalög 1923
Ingibjörg H. Bjarnason:
Jeg á hjer ásamt hv. 4. landsk. þm. (JM) eina brtt. á þskj. 556, um að veita Kvenrjettindafjelagi Íslands 1000 kr. styrk. Svo er mál með vexti, að stjórn Kvenrjettindafjelagsins sendi fjvn. beggja deilda styrkbeiðni, sem fór fram á 2–3 þús. kr., til að standast kostnað við væntanlegan kvennafund, sem fjelagið hefir í hyggju að halda hjer í vor, Mjer er þetta mál að vísu ekki kunnugt til hlítar, en vil þó leggja því liðsyrði, að fjelaginu verði veitt nokkur úrlausn. Jeg tel þetta þarft mál, þar sem fjelagið ætlar að gefa konum utan af landi kost á að sækja þennan fund og gera það eins kostnaðarlítið fyrir þær og unt er. Umsókn þessi kom ekki til fjvn. Ed. fyr en fyrir örfáum dögum, og gat nefndin því ekki gert neitt fyrir málið, nema einhver þm. vildi bera það upp sem brtt., og nú höfum við háttv. 4. landsk. þm. (JM) gert það. Annars vil jeg, með leyfi hæstv. forseta, leyfa mjer að lesa upp umsókn fjelagsstjórnarinnar. Það skýrir málið best. En hún er svo hljóðandi:
„Kvenrjettindafjelag Íslands leyfir sjer hjer með virðingarfylst að snúa sjer til hins háa Alþingis með sjerstakt áhugamál vort, sem oss þykir miklu skifta, að vel takist. Svo stendur á, að vjer höfum boðið ýmsum konum víðs vegar af landinu til Reykjavíkur í vor á almennan kvennafund, og ætlumst vjer til, að sú för og sá fundur gæti orðið til að auka kunnleika, samúð og samvinnu milli allra landins kvenna og til ánægju og fróðleiks fyrir okkur allar sameiginlega. Engin agitation eða sjerstök pólitík liggur til grundvallar fyrir boði voru, sem hið háa Alþingi getur sannfærst um af hjálögðu boðsbrjefi, er vjer leyfum oss að láta fylgja brjefi voru, sem skýringu um tilgang vorn og hvernig vjer hugsum oss aðaldrættina í þessum samkomum.
Oss er fyllilega ljóst, að til þess að þetta geti farið vel úr hendi, þyrfti talsvert fje, enda höfum vjer búist við að leggja fram það, sem efni fjelags vors leyfa. En með því að vjer vonum, að hingað komi ýmsar konur úr fjarlægustu hjeruðum landsins í fyrsta sinni, sem ef til vill leggja aldrei aftur upp í slíka ferð, þá vildum vjer sjerstaklega geta gefið þeim færi á að skoða sig dálítið um hjer sunnanlands áður en þær hjeldu heimleiðis, og yfir höfuð gera þeim og öllum gestunum ferðina sem ánægjulegasta og fróðlegasta. Af brjefum þeim, sem oss hafa borist í hendur, sjáum vjer, að þær eru mjög glaðar yfir þessu boði og vildu gjarnan geta sótt það sem flestar. Oss er því áhugamál, að þær gætu haft bæði það gagn og þá gleði af ferðinni, sem vjer allar óskum eftir, en til þess gerum vjer ráð fyrir, að oss skorti efni, nema vjer nytum stuðnings og velvilja Alþingis.
Fyrir því leyfum vjer oss virðingarfylst að fara þess á leit, að hið háa Alþingi veiti oss 2000–3000 króna styrk á fjáraukalögunum 1923, til að standast þennan kostnað, og teljum vjer mjög sanngjarnt og vel til fallið, að allar landsins konur finni og sjái, að hið háa Alþingi taki ekki síður tillit til þeirra með ofurlitlum fjárútlátum við þeirra fyrstu sameiginlegu heimsókn til höfuðstaðarins en til móttöku útlendinga eða ferðastyrks til fjölda íslenskra manna til útlanda í meira eða minna ákveðnum erindum.“
Boðsbrjefið fylgir með, en jeg skal ekki þreyta háttv. deild á því að lesa það upp. En jeg skal bæta við nokkrum punktum, sem jeg hefi fengið frá formanni fjelagsins, frú Bríetu Bjarnhjeðinsdóttur. Meiningin er, að í sambandi við fundinn verði sýning á ýmsum nýtísku heimilisáhöldum, rafmagns- og gasáhöldum o. fl. Enn fremur nýtísku sauma- og prjónavjelum. Húsmæðrafjelög annara landa stofna iðulega til svona funda, og því mun Kvenrjettindafjelagið hafa tekið þetta mál að sjer. Það væri gott, ef Alþingi gæti sint þessu máli eitthvað, því að það er ljóst, að töluverður kostnaður fylgir fundahöldum þessum. Að vísu hafa konur þær, er boða til þessa fundar, reynt að fá ókeypis far fyrir gesti sína, sem sjóveg koma á fundinn, en jeg veit ekki, hvaða árangur það hefir borið. Fjelagið hefir leigt 3 stofur í Iðnskólanum, bæði til sameiginlegra fundarhalda. fyrirlestra og til væntanlegrar skýringar. Það er gott mál og þarft að auka kynningu kvenna um land alt, og væri vel farið, að hið háa Alþingi vildi veita þó ekki væri nema helminginn af þeirri upphæð, sem fjelagsstjórnin fer fram á.
Það má búast við, að þátttaka verði mikil. Nokkrar sýslur hafa þegar sent skýrslu um þátttöku sína. Skal jeg leyfa mjer að lesa upp skýrslu, sem jeg hefi fengið um það. hve margar koma sjóleiðina:
Úr Eyjafjarðarsýslu 4,
— Skagafjarðarsýslu 4,
— Austur-Húnavatnssýslu ... 10,
— Strandasýslu 3,
— Ísafjarðarsýslu 6,
— Snæfellsnessýslu 5,