07.05.1923
Efri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1457 í B-deild Alþingistíðinda. (1189)
139. mál, fjáraukalög 1923
Jón Magnússon:
Jeg tek til máls af því, að jeg hefi skrifað nafn mitt undir eina brtt. ásamt hv. 6. landsk. þm. (IHB).
Fer hún fram á styrk til Kvenrjettindafjelags Íslands, 1000 kr., til kostnaðar við kvennafund, sem fjelagið gengst fyrir, að haldinn verði hjer í bænum nú í sumar.
Styrkur þessi á þó eiginlega ekki að ganga til þessa fjelags, heldur til þess að gera konum utan af landi sem þægilegast fyrir að sækja fund þennan. Jeg hefi nú að jafnaði verið fús til að styðja konurnar í málaleitunum þeirra, hvort sem um rjettindi eða smávægilega fjárstyrki hefir verið að ræða, og var mjer því ljúft að fylgja þessari beiðni, sem er mjög hógvær, eins og fjárbeiðnir kvenna hafa að jafnaði verið, og því vel forsvaranlegt að samþykkja hana.
Jeg læt þetta nægja, enda hefir meðflm. minn, hv. 6. landsk. þm. (IHB), gert ítarlega grein fyrir þessari brtt., sem jeg hefi engu við að bæta.
Jeg ætla heldur ekki að fara neitt út í brtt. hv. 2. þm. G.-K. (BK), að endurborga 2 togarafjelögum skattgreiðslu. Aðeins vil jeg taka það fram út af ummælum hæstv. atvrh. (KIJ), að á þinginu í fyrra gerði þáv. fjrh. (MG) nákvæmlega grein fyrir, hvernig í þessu máli lá. Að vísu má segja, að eðlilegt sje, að hæstv. atvrh. (KIJ) sje þessu máli eigi svo kunnugur sem skyldi, en þar má kynnast því til hlítar.
Jeg ætla ekki frekar að fara út í málið, en aðeins skal það tekið fram, að það er að minni skoðun mikið sanngirnismál.