09.03.1923
Neðri deild: 16. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í B-deild Alþingistíðinda. (119)
13. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Jón Baldvinsson:
Það mun hafa verið jeg, sem bað um orðið í gær, og hefir þetta skolast til í minni hæstv. forseta. En jeg get raunar verið stuttorður, þar sem engin veruleg mótmæli hafa komið gegn breytingartillögu minni, nema þá helst frá hv. 1. þm. Reykv. (JakM). En fyrst vildi jeg leyfa mjer að víkja nokkrum orðum að einu eða tveimur atriðum í ræðu háttv. 3. þm. Reykv. (JÞ). Hann var að tala um, að hinir hærri gjaldendur hefðu eigi nú, síðan kosningarrjetturinn er orðinn svo almennur, tækifæri til að hafa eins mikil áhrif á löggjöfina sem hinir lægri. En hvernig er farið að því að afla skoðunum flokkanna fylgis? Eru það ekki einmitt efnamennirnir, sem hafa best tök á þessu ? Þeir hafa ráð á að gefa út og halda uppi blöðum til þess að útbreiða skoðanir sínar. Og þetta gera þeir líka. Hjer á landi halda þeir úti stóru blaði eins og Morgunblaðinu, og mörgum fleiri blöðum, til að afla sjer fylgis. Þetta er því nokkuð vafasamt atriði hjá háttv. 3. þm. Reykv., að þessir menn fái ekki notið sín eða haft áhrif á löggjöfina, þótt kosningarrjetturinn sje almennur. Þá var það enn annað atriði í ræðu þessa háttv. samþm. míns, er hann var að tala um flokkana í Danmörku. Vinstrimenn og jafnaðarmenn hefðu verið sterkustu flokkarnir, og þeir gætu saman komið fram þeim málum, sem þeir vildu. En þess er að gæta, að allir flokkar, svo sem flokkur stórbænda, sem er vinstrimenn, flokkur íhaldsmanna og „radikala.“ mundu sameinast gegn socialistum, ef hækka skyldi skattinn á hærri tekjunum. Að vísu varð fyrir tilstilli socialista og „radikala“ tekinn allhár skattur af stríðsgróða snemma á stríðsárunum. Hjer kom of seint til þess, enda heyrðist mjer urgur koma allmikill í stóreignamenn hjer, er á það var minst á Alþingi 1917, og það er víst, að þá höfðu stóreignamennirnir hjer þau áhrif, að stríðs- og gróðaskatturinn varð miklu lægri en vera hefði átt.
Jeg vil þá næst víkja að því, sem háttv. 1. þm. Reykv. (JakM) sagði um skattinn, fyrst og fremst alment og síðan í sambandi við mína brtt. Hann hjelt því fram, að ef frv. meiri hl. næði fram að ganga, þá mundi allur fjöldi fjölskyldumanna sleppa við skatt. En ef svo er, þá verð jeg að álíta, að þetta komi illa heim við kenningu hans um uppeldisáhrifin, sem hann var að fjölyrða um, að skattgreiðslan ætti að hafa á menn. En jeg vil spyrja: Heldur hann, að t. d. fimm manna fjölskylda hjer í Reykjavík geti komist sómasamlega af með 2500 kr. árstekjur, að hún geti af þessari upphæð haft viðunanlegt fæði, húsnæði, klæði o. s. frv. ? Jeg býst við, að fleiri en jeg komist við nánari athugun að raun um það, að svo verður ekki. Það verður því í alla staði að telja ranglátt að gera mönnum að greiða skatt af þeim tekjum, sem ekki nægja einu sinni fyrir lífsviðurværi. Og brtt. mín fer einmitt þá rjettu leið, að undanþiggja skatti tekjur, sem nauðsynlega þarf til lífsviðurværis. Þá fyltist háttv. þm. (JakM) miklum móði út af þeim mönnum, sem að hans áliti væru að ala upp ábyrgðarleysi hjá mönnum í fjármálum. En slíkt verður nú að fyrirgefa öðrum eins varfærnis- og sparnaðarpostula eins og háttv. þm. (JakM), þótt jeg hefði tekið slíkt óstint upp, ef einhver eyðslubelgurinn hefði átt í hlut.
Við endurskoðun tekjuskattslaganna, er vel getur farið fram á þessu þingi, má vel taka það til greina, bent hefir verið á, sem sje það, að hafa frádráttarfjárhæðina hærri við sjávarsíðuna heldur en í sveitum, þar sem viðurværið er ódýrara. Jeg sje eigi, að frekari breytingar á lögunum, eins og stendur í nefndaráliti meiri hl., mundu valda meiri rjettarruglingi heldur en t. d. hækkun og lækkun skattstigans, sem teljast verður aðalatriðið í þessu máli, og alt snýst um í raun rjettri. Rjettaróvissan er því engu meiri, þótt breytingar sjeu gerðar á fleiru í lögunum.
Annars komu engin veruleg andmæli fram gegn brtt. minni. Enda verður ekki með nokkurri sanngirni heimtaður skattur af þurftartekjunum. sjerstaklega þegar hinir óbeinu skattar eru jafnháir og enn þá er.