12.05.1923
Efri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1487 í B-deild Alþingistíðinda. (1217)
139. mál, fjáraukalög 1923
Jónas Jónsson:
Þar sem hv. frsm. fjvn. (EÁ) er forfallaður, hefir það orðið hlutskifti mitt að segja fáein orð um brtt. nefndarinnar. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu, að eigi væri ástæða til að taka til greina sumar af brtt. háttv. Nd., en áleit hins vegar rjett að hreyfa eigi við nokkrum þeirra.
Háttv. Nd. hefir felt niður styrkinn til Jóns Jónssonar, fyrverandi læknis á Blönduósi, en fjvn. Ed. hefir tekið hann upp aftur, því að hún sá eigi ástæðu til að láta aðrar reglur gilda um þennan mann en aðra embættismenn landsins.
Þá hefir nefndin lagt það til, að liðurinn um skaðabætur til Kristjáns Jónassonar falli niður. Hefir það atriði verið skýrt áður í þessari háttv. deild. Fjárhæðin, sem hjer er um að ræða, er að vísu eigi há, en það hefir verið dregið mjög í efa, að um slíkt tjón sje að ræða, sem gert er ráð fyrir, og það, sem meðal annars hefir komið nefndinni til að leggjast á móti þessum lið, er það fordæmi, sem slík fjárveiting mundi skapa. Auk þess hefir nefndin heyrt það frá ýmsum mönnum úr Mýrasýslu, að gestgjafi sá, sem um er að ræða, taki jafnaðarlega á móti veikum mönnum, og byggja þeir meðmæli um styrk á því. Ef því nú ætti að bæta honum tjón, sem hann hefir beðið af einum sjúkling, þá væri hætt við, að fleiri svipaðar kröfur kæmu frá þessum sama manni, og væri þá örðugt fyrir þingið, samræmis vegna, að neita honum ásjár um þær kröfur.
Þá kem jeg að 3. brtt. á þskj. 627, við 4. gr. 5. um uppbót á launum talsímakvenna við bæjarsímann í Reykjavík og Steindórs Björnssonar. Þarf eigi að fjölyrða um þennan lið í þessari háttv. deild. Háttv. deildarmenn hafa staðið saman um það að lækka upphæðina í fjárlögunum, og ættu því að hafa sömu afstöðu til málsins í fjáraukalögunum. Ef hærri upphæðin, sem samþykt var í háttv. Nd., verður látin standa, þá verður nauðsynlegt að breyta launalögunum að því er snertir fleiri launaflokka.
Þá er það 4. brtt. á þskj. 627, um gengismun á fjársendingum íslenskra námsmanna erlendis, að liðurinn falli niður. Till. um að greiða þennan gengismun er komin nokkuð seint inn í fjárlögin, borin fram af hæstv. forsrh. (SE). Nefndin áleit, að örðugt væri að koma greiðslunni rjettlátlega fyrir, og hefir því lagt til, að liðurinn fjelli niður. Og þar sem hjer er um áætlunarupphæð að ræða, þá er eigi ómögulegt, að hún yrði misbrúkuð.
Þá kem jeg að 5. brtt. á sama þskj.. við 5. gr. 2. Hefir einn læknir bæjarins falast eftir því, að honum yrði veittur styrkur til að kaupa læknisáhald eitt, svo nefnt „diathermi“. En þar sem nefndinni er ókunnugt um nauðsynina á þessu áhaldi og hefir eigi getað kynt sjer þá hlið málsins, þar sem beiðnin er fram komin á síðustu stundu, og þar sem læknirinn hefir lofað að láta áhaldið ganga til landsspítalans á sínum tíma, en nefndin hefir eigi viljað veita styrkinn á þeim grundvelli, vegna hættunnar á því, að fleiri kröfur komi fram af sama tægi, þá hefir hún lagt til, að liðurinn falli niður.
Háttv. Nd. gerði breytingu viðvíkjandi kvennaskólanum í Reykjavík, í þá átt að færa niður um 1000 kr. fjárveitinguna, sem samþykt var hjer í þessari hv. deild, en bæta 1000 kr. við kvennaskólann á Blönduósi. Fjvn. þessarar deildar ljet upphæðina til Blönduósskólans standa, en leggur til, að Reykjavíkurskólinn sje hækkaður aftur upp í sömu upphæð og áður. Skóli þessi er stærsti kvennaskóli landsins og hefir þó kostað landið mjög lítið. En þar sem skólinn hefir eigi komist hjá því að safna töluverðum skuldum, þá sjer nefndin eigi ástæðu til að slaka til á upphæðinni og mælir með því, að fyrri upphæðin standi óbreytt.
Þá hefir háttv. Nd. felt niður styrkinn til Sigurðar Magnússonar, fyrv. læknis á Patreksfirði. En fjvn. Ed. lítur svo á, sem þetta sje nokkurskonar ellistyrkur til útslitins embættismanns, sem er bilaður á heilsunni og á við þröngan kost að búa, og leggur því til, að styrkurinn sje tekinn upp aftur.
Síðustu tvær brtt. á þskj. 627 (Reinh. Andersson og niðursuðufjel. Konráðs Stefánssonar) hefir nefndin lagt til, að væru feldar niður, þar sem henni virðast fyrirtækin, sem lánin eiga að veitast til, svífa mjög í lausu lofti. Og því miður eru litlar líkur til þess, þó að 20 þúsund krónur verði lánaðar hr. Andersson, að þær nægi honum til þess að koma upp svo miklum birgðum, að það verði landsforði. Og auk þess er ástæða til að óttast, eins og stendur á hjá okkur nú, að fatnaðurinn verði dýrari en samskonar fatnaður erlendur, og því er hætt við, að fyrirtækið beri sig illa, sjerstaklega þegar þess er gætt, að engin reynsla er fengin fyrir því, að hægt sje að gera ódýr föt úr íslenskum dúkum.
Um niðursuðufjelagið er það að segja, að öllum háttv. þm. er það ókunnugt eftir umsókninni, því að hún ber það með sjer, að fyrirtækið er mjög lauslopalega hugsað og engar fastar áætlanir eða teikningar eru fyrir hendi. Nefndin telur fyrirtækið lítt undirbúið og álítur það óverjandi af Alþingi að binda fje landsins í því.