12.05.1923
Efri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1490 í B-deild Alþingistíðinda. (1218)

139. mál, fjáraukalög 1923

Forsætisráðherra (SE):

Það er hjer ein brtt. á þskj. 627, 4. brtt., við 5. gr. 1, sem jeg vildi fara nokkrum orðum um. Jeg bar till. fram við fjárlagafrv., þá nokkru hærri en hún er nú, sem sje 5000 kr., en svo kom hún við fjáraukalagafrv. í hv. Nd., þá 4000 kr., og var samþykt þar. Þegar jeg var niðri í Kaupmannahöfn síðast, þá komu stúdentar til mín og báru upp fyrir mjer vandræði sín. Sögðust þeir eiga mjög örðugt með nám í Kaupmannahöfn sakir dýrtíðar. Aðstandendur þessara manna reita sig eins og þeir geta til þess að styrkja þessa syni sína, og þeim er það fullerfitt að senda þeim sæmilega upphæð í íslenskum krónum. En þegar gengismunurinn hefir herjað á upphæðirnar, þá reynist stúdentunum erfitt að halda svo á fjenu, að þeim dugi það til nauðsynlegra útgjalda sinna. Jeg hefi fengið þær upplýsingar frá kunnugum mönnum um íslenska stúdenta í Kaupmannahöfn, að þeir leggi mjög mikla rækt við námið og fari vel með fje sitt. Því lofaði jeg þeim, er þeir komu til mín, að jeg skyldi leggja það til, að Alþingi sinti þessari beiðni þeirra, en kvaðst á hinn bóginn eigi geta gert neitt í málinu fyr en Alþingi kæmi saman. Jeg hefi ekkert á móti því, að upphæðin sje bundin við 4000 kr., en eigi áætlunarupphæð. Það getur verið alveg eins gott.