11.04.1923
Neðri deild: 39. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1509 í B-deild Alþingistíðinda. (1249)
115. mál, verslun með smjörlíki
Frsm. (Björn Hallsson):
Jeg þarf ekki að hafa langa framsögu fyrir hönd nefndarinnar. Það, sem máli skiftir, er flest tekið fram í greinargerð nefndarinnar og höfunda frv., sem prentuð er sem fylgiskjal við frv. Eins og þar er tekið fram. var nefndinni sent frv. af forseta Búnaðarfjelags Íslands, og var hún einróma samþykk því, að rjett væri að flytja frv., þar sem fullkomin þörf virtist á lögum um þetta efni. Smjörlíkisverksmiðjum hefir fjölgað óðum á síðustu árum, og er því full nauðsyn á, að þegar sjeu sett lög um tilbúning og sölu smjörlíkis. Það hefir borið á því, jafnvel hjer í Reykjavík, að smjörlíki hefir verið blandað við smjör, og við því þarf einnig að setja skorður með því að ákveða, hvernig smjörlíki skuli samsett, svo að auðvelt sje að rannsaka það. Því eru ákveðin þau hlutföll, sem efnin eiga að vera í, t. d. eiga að vera 10% af hinni svonefndu sesamolíu.
Nefndin sá ekki ástæðu til að breyta frv. mikið. Hún hefir leitað upplýsinga um efni þess, og þar sem frv. er samið af fróðum mönnum í þessu efni, er trygging fyrir því, að vel sje frá því gengið. Það er samið eftir dönskum og þýskum lögum, er best þykja í þessari grein. Þó hefir nefndin gert nokkrar breytingar á frv. Henni þótti 1. gr. ekki sem haganlegast orðuð, og breytti því orðalaginu, en gerði engar efnisbreytingar á henni. Nefndin hefir anna s enga efnisbreytingu gert á frv., nema í 9. gr. Í frv., sem kom frá Búnaðarfjelaginu, var ákveðið, að í smjörlíki mætti vera alt að 18% af vatni Eftir þeim upplýsingum, sem nefndin fjekk, þótti henni þetta óþarflega hátt, þar sem 4 ára reynsla í Reykjavík hefir leitt í ljós, að 13–14% væri venjulegast. Nefndinni þótti því nóg að ákveða hámarkið 16%, þar sem smjörlíkið er því betra, eftir því sem minna er af vatni í því, geymist betur og er útgengilegri vara. Þá er þetta beint aðhald til vöruvöndunar, að setja hámark vatnsins ekki of hátt. Í þýskum og dönskum lögum mun hámarkið vera 17%, svo að menn sjá, að þetta er nærri lagi.
Í frv. er atvinnumálaráðuneytinu ætlað eftirlit með smjörlíkisverksmiðjuni, og setur það reglugerð um það. Virðist liggja beint við, að í þeirri reglugerð sje tekið fram, að þar sem slíkar verksmiðjur eru reistar úti um land, hafi hlutaðeigandi heilbrigðisyfirvöld þetta eftirlit. Það virðist óþarfa kostnaður að senda eftirlitsmann úr Reykjavík, en hins vegar mætti altaf senda hingað sýnishorn til rannsóknar.
Þetta mál hefir verið til meðferðar á öðru þingi, þó að ekki sje jafnfjölment sem þetta, en það er búnaðarþingið. Jeg hefi sjeð álit allsherjarnefndar búnaðarþingsins um þetta mál, en hún hafði höfunda frv. einnig sjer til aðstoðar. Sú nefnd hefir ekki borið fram aðrar breytingar við frv. en orðabreytingar. Jeg býst við, að landbn. taki þessar brtt. til meðferðar og beri þær fram við 2. umr. ef henni þykir rjett að taka þær til greina. Jeg býst ekki við, að miklar umræður þurfi að verða um þetta frv. og vona, að háttv. deild taki vel undir það.