21.04.1923
Neðri deild: 47. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1518 í B-deild Alþingistíðinda. (1259)
115. mál, verslun með smjörlíki
Frsm. (Björn Hallsson) :
Út af ræðu háttv. 1. þm. Ám. (EE) verð jeg aðeins að geta þess, að það er alveg rangt hjá honum, að nokkur vernd eða nokkurt loforð til smjörlíkistilrauna smjörbúsins í Hrunamannahreppi sje fólgið i því, þó veitt hafi verið til þess viðlagasjóðslán. Vitanlega ekkert loforð gefið um neina vernd, enda lágu þá engin frv. fyrir þingi um innlenda smjörlíkisgerð, eins og nú. Jeg skal að vísu játa það, að þetta getur verið óþægilegt fyrir þessa smjörlíkisgerð. En ef slík undanþága er gefin, er aðalreglan brotin og getur haft slæm áhrif fyrir smjörsöluna. Þess vegna getur nefndin ekki fallist á tillöguna. Þessi hv. þm. viðurkennir líka, að þetta sje skaðlegt, en flytur samt þessa brtt. og er það nokkurt ósamræmi hjá honum. Annars vil jeg láta mjer nægja að vísa til fyrri ræðu minnar.
Háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) hafði bað að athuga við 5. gr., að hún væri ekki vel orðuð og að í hana vantaði ákvæði um það, að lögin ætu ekki að ná til framleiðslu viðbitis á sveitaheimilum. Það hefir aldrei verið svo til ætlast nje gr. svo skilin, að hún ætti við sveitaheimili, heldur ætti aðeins við sölu á þessum vörutegundum, sem frv. talar um. Má vel vera, að gott sje að skýra þetta nánar, til að fyrirbyggja misskilning, en benda vil jeg á það, að í 3. gr. frv. eru settar takmarkanir um það. hvernig eigi að fara með smjörlíki, merki á því o. s. frv., og er það alt miðað við sölu á þessari vörutegund, og ætti alls ekki að geta valdið misskilningi. Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) þótti 5. gr barnaleg. Jeg sagði það strax, að það væri erfitt að setja ákvæði um tilbúning smjörlíkis og smjörs á sama stað eða nálægum stöðum, en erfiðara er að fara í kringum þetta, ef þessi ákvæði eru, heldur en ef engin eru.
Hann sagðist fyrst mundu greiða atkvæði með brtt en síðan á móti gr. Skil jeg ekki þessa afstöðu hans, nema ef hann er þá algerlega á móti frv., og er hann auðvitað sjálfráður um það. En um það ætti þó öllum að koma saman, að nauðsynlegt sje að setja lög um þetta efni.