21.04.1923
Neðri deild: 47. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1521 í B-deild Alþingistíðinda. (1262)
115. mál, verslun með smjörlíki
Frsm. (Björn Hallsson):
Jeg skildi hv. 4. þm. Reykv. (MJ) rjett. Hann er á móti frv. Hann sagði, að alt stæði óhrakið hjá sjer. Það er nú svo, að hverjum þykir sinn fugl fagur, og er ekkert við því að segja.
En jeg skil ekki háttv. þm., ef þeir vilja ekki hafa neitt ákvæði um það, að hindra það, að smjöri og smjörlíki sje blandað saman og vilja nema burtu þau ákvæði, sem gætu hindrað þetta. En hitt er óvíst, hvort þessi tryggingarákvæði eru næg.
Háttv. 1. þm. Árn. (EE) var að tala um, að þingið breytti oft fljótt um skoðun, og gerði það líka hjer, ef þetta frv. yrði samþykt óbreytt. En það er ekki rjett, að þetta atriði hafi verið til umræðu hjer í þinginu í fyrra, heldur aðeins lánsheimildin til þessa hrepps.
Um álit Búnaðarfjelagsforsetans skal jeg ekkert segja. Er gott, ef hægt væri að laga þetta, en það verður tæpast gert með þessari brtt. hv. þm.