27.04.1923
Neðri deild: 51. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1529 í B-deild Alþingistíðinda. (1301)

114. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka

Frsm. (Magnús Kristjánsson) :

Eins og kunnugt er, var ákveðið með lögum 31. maí 1921, að fyrir 1. júní 1922 skyldi endanleg skipun gerð á seðlaútgáfu bankanna. Nú fór svo, að á síðasta þingi kom ekkert frv. fram um þetta, vegna þess, að stjórnin þóttist ekki viðbúin að inna af hendi nauðsynlegan undirbúning, og þá var fresturinn framlengdur til 1. júní þessa árs. Nú liggur ekki fyrir neitt frv. um breytingu á þessu, eða til fullnaðarskipunar á seðlaútgáfunni, og verður því að samþykkja frv. það, sem fyrir liggur, og framlengja enn eins árs frest, til 1. júní 1924. Þetta er svo einfalt mál, að um það þarf ekki að fjölyrða. En þó vil jeg láta það í ljós sem mína skoðun, að þessar framlengingar ættu ekki að þurfa að eiga sjer stað oftar, heldur þyrfti að gera endanlega skipun á þessu á næsta þingi.