13.04.1923
Neðri deild: 41. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1550 í B-deild Alþingistíðinda. (1315)
110. mál, jarðræktarlög
Jakob Möller; Jeg get tekið undir með báðum háttv. samþm. mínum (JÞ og JB) að því er snertir 4. kafla lagafrv. þessa. Ákvæði þau, er í honum eru, eiga ekki við á þessum stað. Mjer skilst þó svo, sem þetta hafi ekki mikla þýðingu í raun og veru, nema að formi til. Til þess að ráða bót á þessu, mun jeg gera að tillögu minni, að frv. þessu verði, að þessari umr. lokinni, vísað til fjhn., til þess, að hún geti athugað samband þessa frv. við ríkisveðbankalögin; jeg veit ekki, hve vel háttv. landbn. hefir athugað þetta.
Í rauninni skilst mjer ekki, að það skifti nokkru verulegu, hvort svo er ákveðið, að fje ræktunarsjóðs og kirkjujarðasjóðs megi einungis lána til jarðræktarfyrirtækja. Ágreiningurinn 1921 milli mín og háttv. samþm. míns, 3. þm. Reykv. (JÞ), var ekki um það, heldur hitt, hvort stofna ætti tvo veðbanka, sem hvor hefði sínar tryggingar. Aðalverkefni sjóðanna gagnvart ríkisveðbankanum er það, að vera tryggingarfje hans. Og við eigum ráð á svo litlum tryggingum til slíkra hluta, að ekki má við að skifta þeim, og jeg hygg, að hugir manna sjeu þeir sömu um það enn eins og 1921.
Að þessu sinni ætla jeg mjer ekki að fara frekar út í þetta frv. Tilgangur minn með þessum orðun, er aðeins sá, að óska þess, að frv. verði vísað til háttv. fjhn. til athugunar.