13.04.1923
Neðri deild: 41. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1560 í B-deild Alþingistíðinda. (1318)

110. mál, jarðræktarlög

Jón Þorláksson:

Út af orðum háttv. frsm. (ÞórJ) um Miklavatnsmýraráveituna og Búnaðarfjelagið skal jeg geta þess, að alt, sem jeg sagði, er rjett. Það eru til skjalleg skilríki fyrir því; jeg hefi þau að vísu ekki við hendina, svo að jeg get ekki lesið upp úr þeim, en þau er altaf unt að finna.

Það er satt, að áhuginn er daufur hjá bændum þeim, er hlut eiga að máli, og er það að mestu leyti þeim sjálfum að kenna. En þó má finna ástæður til þess. Þó að áveitan hafi ekki tekist eins vel og æskilegt hefði verið, hafa bændur á þessum afskekta stað fengið af henni meiri slægjur en þeir þurfa að nota sjálfir. Þetta kann að eiga sinn þátt í því, að þeir hafa ekki sint þessu fyrirtæki meir. Það væri því gott, ef ýtt væri undir þá, t. d. af hálfu Búnaðarfjelagsins, að halda þessu mannvirki svo við, að það komi að fullum notum.

Jeg skal ekki fara út í umræðurnar um Skeiðaáveituna. Það er rjett, að allmikill ófyrirsjeður kostnaður hefir komið fram. En ekki má ganga fram hjá því, að sá kostnaður stafar meira af verðhækkun vegna dýrtíðarinnar heldur en af þeirri óbilgjörnu klöpp, er hv. 1. þm. Árn. (EE) varð svo tíðrætt um. Hvar upptökin eru að því, að nógu nákvæm rannsókn var ekki gerð, gæti jeg skýrt fyrir hv. deild, en hjer er ekki staður til að halda fyrirlestur um það efni, og skal jeg því sleppa því. (BJ: Vill hv. þm. ekki skýra frá því?) Þar sem hv. þm. Dala. (BJ) óskar þess, get jeg vel orðið við tilmælum hans. Það getur ef til vill haft einhverja þýðingu, að hv. þingmenn og hæstv. atvrh. (KIJ) fái að heyra, hvernig i þessu liggur.

Þegar slík stórfyrirtæki eru á döfinni, er jafnan einhver verkfræðingur fenginn til þess að framkvæma bráðabirgðarannsókn á skömmum tíma og með litlum kostnaði og gera kostnaðaráætlun svo að hlutaðeigendur geti áttað sig á fyrirtækinu og ákveðið, hvort ráðast skuli í verkið. Þetta er það, sem á verkfræðingamáli er kallað frumdrættir, eða á slæmri íslensku bráðabirgðaprójekt. Eftir þessari áætlun eru teknar allar ákvarðanir um verkið, og síðan er komið til einhvers verkfræðings, oft og tíðum annars en þess, er gerði frumrannsóknina, sagt að nú sje fengið fje til fyrirtækisins og hann beðinn að framkvæma verkið og byrja strax. En þá má ekki fella niður nauðsynlegan lið, sem er, að gera fullnaðarrannsókn og áætlun. eða „detailprojekt“, sem alment er kallað. Þá hefir verkið verið ákveðið og þá er alvaran framundan. Þegar bráðabirgðaáætlun er gerð, vita menn venjulega ekki, hvort verkið verður framkvæmt á nálægum tíma og ekki auðið að gera allar nauðsynlegar rannsóknir. Þessi fullnaðarrannsókn á að leiða í ljós, hvort ekki þurfi að breyta frumdráttunum. Kemur þá undantekningarlaust í ljós, að það fer betur að breyta þeim í einhverju. Venjulega þarf það ekki að hækka áætlunina; það kemur oft í ljós, að breyta má til batnaðar og sparnaðar. Og þar sem fjárveiting er fengin og fje er nóg til þessarar rannsóknar, hefir verkfræðingur sá, er framkvæmir fullnaðaráætlunina, enga afsökun.

Að Skeiðaáveitunni hafa ýmsir menn framkvæmt bráðabirgðarannsóknina. Einstakir menn, er stóðu að málinu, og landsstjórnin komu svo árið 1917 til landsverkfræðings og fóru fram á, að hann ljeti byrja á verkinu þegar í stað. Má ef til vill leggja sök á þann verkfræðing, að hann skyldi taka verkið að sjer án þess að fullnaðarrannsókn væri gerð. En að sprengja þurfti þessa margumræddu klöpp, má ekki gefa þeim að sök, er framkvæmdu bráðabirgðarannsóknina. Hefði fullnaðarrannsókn verið gerð, mundi þessi klöpp hafa fundist, og hefði þá ef til vill mátt víkja skurðinum fram hjá henni. En þetta er sagt um undirbúning þessa máls til lærdóms og viðvörunar þeim, sem eiga að stjórna slíkum verkum, og þetta er ekki eins dæmi, heldur er hjer á landi venjulega farið þannig að.

Háttv. frsm. (ÞórJ) hafði það eftir einum af ráðunautum Búnaðarfjelagsins, að hann skildi ekki í því, að nokkur maður hjer á landi væri fær um eða vildi taka að sjer ábyrgðina á Flóaáveitunni. Þetta eru dularfull ummæli. Það má benda á þá, sem tóku að sjer ábyrgðina á framkvæmd verksins, og auk þess aðra, er fúsir voru til þess, þó að það atvikaðist svo, að þeir gerðu það ekki. Jarðeigendur hafa tekið á sig fjárhagsábyrgðina að 3/4 hlutum; líta þeir svo á, að trygging sje fyrir, að þeir fái næga uppskeru. ef vatninu verður náð inn á lönd þeirra. Þeir eru því óragir; en það má vera, að sá framkvæmdavilji og ljettúð, er greip alla menn á uppgangsárunum, hafi átt þátt í þessu, og að menn hafi verið örari árið 1921, þegar framkvæmd verksins var afráðin, heldur en fyrir ófriðinn. Þeir hugsuðu hátt og lögðu út í verkið með miklum áhuga. Þeir gerðu ráð fyrir, að áveitan yrði að minsta kosti þrisvar sinnum dýrari en áætlað hafði verið fyrir ófriðinn; og með það fyrir augum rjeðust þeir í að framkvæma verkið. Um forstöðu verksins neita jeg ekki, að jeg hefi að nokkru leyti tekið á mig ábyrgðina, þar sem jeg er framkvæmdarstjóri þess, og sú stjórn, er afrjeð, að hefja skyldi verkið, á sinn þátt í ábyrgðinni. Einnig var Búnaðarfjelagið reiðubúið að taka á sig ábyrgðina, þar sem það bauð stjórninni að takast á hendur forstöðu verksins. Getur verið, að ráðunautar Búnaðarfjelagsins undrist eitthvað í þessu máli, en það munu þó tæplega vera þau atriði, er Búnaðarfjelagið bauðst til að taka ábyrgðina á. En að farið hafi verið rjett að í öllum greinum frá upphafi, skal jeg enga ábyrgð taka á, enda yrði langt að bíða verklegra framkvæmda hjer á landi, ef svo ætti að ganga frá öllum undirbúningi, að menn gætu verið vissir um, að ekki yrði fundið að neinu með rökum eftir á.

En það, sem jeg sjerstaklega spurði um, var það, hvort tilætlunin væri, að Búnaðarfjelagið fengi í sína þjónustu verkfræðing, sem fær væri að veita svona fyrirtækjum forstöðu; sjerstaklega á jeg þar við forstöðu vatnavirkjunarinnar í Rangárvallasýslu, sem enn er ekki byrjuð, en ákveðin með lögum og er eitthvert vandasamasta mannvirki, sem fyrirhugað er á þessu landi.

Háttv. frsm. (ÞórJ) gaf það svar, að Búnaðarfjelaginu væri ætluð forstaðan, en svo gæti það tekið verkfræðing sjer til aðstoðar.

Út af þessu svari háttv. frsm. (ÞórJ) vil jeg taka það fram, að jeg álít það algerlega óforsvaranlegt að leggja framkvæmd stjórnarinnar á þessu verki í hendur manna, sem ekki eru verkinu vaxnir og ekki kunna að velja sjer mann til aðstoðar. Það þarf að vanda til valsins á þessum manni, ekki síður en þeirra manna. er hafa vega- og vitamálin með höndum. og hann þarf að hafa sömu aðstöðu og þeir til að lifa sig inn í starf sitt og verkahring. Því má hjer ekki fá neina hlaupamenn. Það gæti orðið til ómetanlegs tjóns þessum málum.