13.04.1923
Neðri deild: 41. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1567 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)
110. mál, jarðræktarlög
Frsm. (Þórarinn Jónsson):
Háttv. 1. þm. Reykv. (JakM) endurnýjaði þá ósk sína, að málinu yrði vísað til háttv. fjhn. Jeg vonast til, að ekki verði tafið fyrir málinu á þennan hátt, heldur reyni nefndin að koma fram breytingum sínum, ef einhverjar kunna að vera, í samráði við landbn.
Háttvirtur 3. þingmaður Reykv. (JÞ) gaf upplýsingar um það, hvað valdið hefði því, að Skeiðaáveitan tókst illa til. Það var gott að fá þær upplýsingar. Þær sýna ótvírætt, hve oft er hætt við því, að þeim mönnum, sem fyrir fyrirtækjunum standa. skjátlist. Hann sagði, að fyrst væri gerð bráðabirgðaáætlun, og eftir þeirri rannsókn eða áætlun væri venjulega farið, en endanlegri áætlun slept. Og þannig hefði verið einnig að farið við Skeiðaáveituna; venjunni hefði verið fylgt. Það hefir því ekki verið kastað höndum að þessu meira en venja er til.
En það er dálítið ömurlegt að heyra þetta. Jeg hafði þá trú, að verkfræðingar framkvæmdu ekki verkið fyr en alt væri rannsakað, sem rannsaka þyrfti. Og jeg tel, að það sje lítt verjandi að byrja án þess. Það er auðvitað vitanlegt, að þessir menn bera ekki ábyrgð verksins: hún lendir á hlutaðeigandi bændum og stjórninni, en í raun rjettri eiga verkfræðingarnir hjer allmikla sök.
Áður en stjórnin ákveður, að verkið skuli framkvæmt, þarf nákvæm rannsókn að fara fram á því, hvort verkið ofbjóði ekki hlutaðeigendum og sligi þá fjárhagslega. Það eitt er ekki nóg, að sjáanlegt sje, að hægt sje að framkvæma verkið fjárhagsins vegna í svip.
Sjái stjórnin, að mikil líkindi sjeu fyrir því, að verkið verði hlutaðeigendum ofviða, er óverjandi að byrja á því. Það er engan veginn nægilegt, þótt ríkissjóður fái næga tryggingu fyrir framlögum sínum, ef þeir, sem verksins eiga að njóta, eru gerðir ómögulegir með því og aldrei verður hægt að gera það fje rentuhært, sem í það hefir verið lagt.
Þetta tel jeg einmitt stærsta atriði málsins, og athugun þessa hvílir á þeim, sem eiga að undirbúa verkið og gera áætlun um það. Hv. þm. (JÞ) sagði einnig, að bændur hefðu haft reynslu af vatninu og þekt frjómagn þess. Jeg veit, að þessi hv. þm. skilur það miklu betur en jeg, að bænduin er enginn kostur á að rannsaka þetta svo fulltrygt sje. Þótt þeir sjái, að vatnið sje gott á einum stað, er engin vissa fyrir því, að það sje svo á öðrum stöðum. Áhrif þess eru undir jarðveginum komin. Sumstaðar getur það skolað nauðsynlegum frjóefnum burtu og sumstaðar getur of mikill kuldi stafað af því. Alt þetta þarf að athugast nákvæmlega áður en í fyrirtækið er ráðist. Háttv. 3. þm. Reykv. (JÞ) má ekki skilja þetta svo, að jeg sje að tala um, að hann beri ábyrgð á því verki, sem hann er settur til að framkvæma aðeins. En jeg held, út af ummælum þessa hv. þm. (JÞ), að Búnaðarfjelagið geti fult svo vel sem stjórnin fengið hæfan mann til að standa fyrir framkvæmd þessara verka. Sá maður er ábyrgðarlaus, nema um framkvæmdina eina. Mjer sýnist því ekkert að athuga við það, þótt Búnaðarfjelagið byðist til þess að taka þessa framkvæmd að sjer því að með því tók það enga ábyrgð á sig á því, hvernig áætlunin var gerð eða hversu vel þetta mál var undirbúið og athugað.
Háttv. þm. (JÞ) viðurkendi það, að áhuginn hjá þeim, sem að Miklavatnsmýraráveitunni eiga að búa, væri daufur. Og það er víst alveg rjett. En hann sagði einnig, að þeir hefðu miklu meiri slægjur en þeir gætu notað, og þetta ætti máske sinn þátt í áhugaleysinu. En er nú ekki ástæða til að spyrja, hvort nauðsyn hafi verið til að ráðast í þetta, þegar það kemur upp úr kafinu, að menn hafa ekkert með þetta að gera, geta ekki notfært sjer það?
Og nú er svo komið, að engin líkindi eru á því, að þeir geti staðist kostnaðinn af þessu, nema ríkið hlaupi undir bagga með þeim. Hann sagði, að eftir frv. ætti Búnaðarfjelagið að hafa umsjón áveitumálanna eða forstöðu. Frv. tekur nú ekkert fram um þetta, en auðvitað er þetta einn þáttur jarðræktarinnar, og mun því koma síðar. En jeg fæ ekkert sjeð því til fyrirstöðu, að Búnaðarfjelaginu sje falin framkvæmd þessara verka, enda þótt það hafi ekki altaf fasta menn í þjónustu sinni til að gegna þeim. Það getur engu síður ráðið menn um stundarsakir til þess en stjórnin, sem gerir það nú. Það er auðvitað, að þessi framkvæmd stjórnar Búnaðarfjelags Íslands er sama sem framkvæmd landsstjórnarinnar, þar sem hún á að hafa yfirstjórn og yfirumsjón allra slíkra mála.