02.05.1923
Efri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1597 í B-deild Alþingistíðinda. (1344)

110. mál, jarðræktarlög

Guðmundur Ólafsson:

Það er nú sama sem kallað á mig að standa upp. Jeg hafði annars ekki ætlað að taka til máls við þessa umræðu. Jeg get fullvissað hv. 4. landsk. þm. (JM), að landbn. hefir nokkuð athugað mál þetta og mun gera sitt ítrasta til þess, að það verði að lögum á þessu þingi. Og er okkur háttv. 4. landsk. þm. kemur svo vel saman um þetta, þá skulum við vona, að það gangi greiðlegar fram í deildinni en gert hafa þau mál, sem við höfum verið ósammála um.