04.04.1923
Neðri deild: 33. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1600 í B-deild Alþingistíðinda. (1356)
99. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Flm. (Jakob Möller):
Jeg vona, að hv. deild taki þessu frv. vel, því að nú er svo komið, að það fer líklega algerlega eftir afdrifum þess, hvort leiklistin deyr út hjer á landi eða henni verður leyft að þrífast hjer og blómgast ekki síður en öðrum listum. Alþingi hefir talið sjer skylt að hlúa að íslenskum listum og það hefir engan veginn haft leiklistina útundan. Það mundi líka verða erfitt fyrir íslensku þjóðina að halda fullri virðingu annara menningarþjóða, ef hún ljeti leiklistina verða úti á gaddinum. Merkur maður útlendur, mikill vinur okkar, sagði í brjefi til eins kunningja síns hjer fyrir nokkrum árum, að sjer væri ómögulegt að bera virðingu fyrir þjóð, sem bristi kappsmuni eða þjóðarmetnað til að koma sjer upp leikhúsi og halda því við.
Það er enginn vafi á því, að leiklistin er elsta listin, er mennirnir hafa iðkað. Það er sennilegt, að þeir hafi iðkað hana áður en þeir lærðu að tala. Sumir segja, að samband leiklistarinnar við aðrar listir sje eins og sagnorðsins við aðra parta ræðunnar. En það mætti ef til vill eins segja, að leiklistin væri móðir annara lista. Enda hafa þegar hinar elstu menningarþjóðir haft hana mjög í hávegum. Nokkrum öldum fyrir Krists fæðingu bygðu Grikkir hið mikla leikhús í Aþenuborgn er rúmaði 30 þúsundir manna. Og auðvitað var það gert á ríkisins kostnað. Var og vandað meira til leikhúsbyggingar í þann tíð en nokkurra annara opinberra bygginga, annara en hofanna. Og leikhúsin voru að öllu leyti rekin á líkisins kostnað. Það er því síður en svo, að leikhús eða leiklist sjeu ávextir ljettúðar eða spillingar síðari tíma. Fyrrum var leiklistin iðkuð jöfnum höndum guði til dýrðar og mönnunum til skemtunar, eins og raunar segja má, að enn sje gert. Því að þótt það sje fyrir löngu lagt niður að nota hana beinlínis í þarfir guðsdýrkunarinnar við guðsþjónustur, sem áður tíðkaðist, þá má með sanni segja, að ýms skáldrit hinna bestu höfunda, sem hlutverk leikhúsanna er að „leggja út af“ fyrir söfnuðinum, sjeu ekki síður guði til dýrðar en mörg guðsþjónustan.
Það er nú líka svo, að það er ekki aðeins fornöldin, sem hefir leiklistina í hávegum. Enn þann dag í dag eru leikhúsin meðal veglegustu bygginga í stórborgum menningarþjóðanna. Og í flestum, ef ekki öllum, löndum eru þjóðleikhús, sem eru rekin fyrir eða styrkt af almannafje.
Þetta er eins gert þar, sem auður er nógur og skemtanafýsn meira en nóg til þess að mörg leikhús geti þrifist og gefið góðan arð án opinbers styrks. Því menningarþjóðir líta svo á, að ekki sje nóg að hafa bara leikhús af einhverju tægi, leikhús, sem rekin eru í gróðaskyni eða eiga fyrst og fremst að bera sig. Slík leikhús eru ekki líkleg til að verða jafnframt slík uppeldisstofnun fyrir fólkið, sem góð leikhús geta orðið. Leiklist, sem iðkuð væri í því skyni fyrst og fremst að afla sem mestra tekna, myndi hætt að afvegaleiðast. Það er enginn vafi á því, að ef illa er með leiklistina farið, þá getur hún ekki síður spilt en bætt. Þess vegna verður það opinbera að hafa hönd í bagga með því, hvernig leiklistin er iðkuð. Og það er hlutverk þjóðleikhúsanna að varðveita smekk manna fyrir góðri leiklist og hefja leiklistina á hærra stig.
Leikhúsið á að vera ekki aðeins til skemtunar, heldur og jafnframt skóli fyrir almenning. En þó að það ætti að vera aðeins til skemtunar, þá fer því fjarri, að það væri einskisvert fyrir því. Mennirnir eru nú eitt sinn svo gerðir, flestir að minsta kosti, að skemtanir eru þeim nauðsynlegar eins og matur og drykkur. Og það er ekki lítils um það vert, hvernig þær skemtanir eru, sem almenningi er gefinn kostur á. Það varðar einkanlega afarmiklu að því er til æskulýðsins kemur, hvort slíkar skemtanir eru mentandi og göfgandi eða heimskandi og jafnvel siðferðislega spillandi. — Það ætti því beinlínis að vera viðurkend skylda þess opinbera að sjá fyrir því, að almenningu eigi kost góðra og göfgandi skemtana.
En eins og jeg drap á í upphafi, þá er það í raun og veru viðurkent hjer, að því opinbera beri að gera þetta, að minsta kosti með því að styðja leiklistina. Leikfjelagi Reykjavíkur hefir nú áratugum saman verið veittur nokkur fjárstyrkur, bæði úr ríkissjóði og bæjarsjóði, til að halda uppi sjónleikum hjer í bænum. En nú er svo komið, að sá styrkur nægir ekki. Leikendur hafa lagt á sig mikla vinnu öll þessi ár, sem Leikfjelagið hefir starfað, og verkalaunin hafa verið lítil. En það er þó ekki krafa um meiri laun, sem hjer er um að ræða. Það er ekki það, að leikendurnir ætli nú að gera verkfall, nema þeir fái hærri laun, sem veldur því, að fjelagið er nú að gefast upp. Það er húsnæðislaust. Leiklistin stendur að því leyti ver að vígi en aðrar listir, að hún getur ekki þroskast og þróast, nema til sje húsnæði, sem hún getur ráðið yfir. Leikfjelagið hefir öll þessi ár, sem það hefir starfað, orðið að notast við lðnaðarmannahúsið. Það er svo ljelegt leikhúsl að ekki er samboðið höfuðstað fullvalda ríkis. Og það er ekki samboðið þeirri leiklist, sem skapast hefir þó innan veggja þess. Því enda þótt leiklistin hafi átt hjer við örðug kjör að búa, þá er það þó viðurkent, að hún hefir náð miklu meiri þroska en vænta mátti. Og það er sannað, ekki aðeins með vitnisburði okkar sjálfra, heldur og ýmsra erlendra listmentaðra manna, sem þykjast hafa sjeð her svo vel leikið, að sambærilegt sje við jafnvel það besta erlendis. En það er þó ekki aðeins það, að leikhúsið sje ljelegt og ósamboðið höfuðstaðnum og þeirri list, sem þar er iðkuð, það er ekki aðeins þetta, sem veldur því, að óhjákvæmilegt er orðið að reisa hjer leikhús, ef íslensk leiklist á ekki að deyja út. Það, sem því veldur, er, að Leikfjelagið hefir ekki lengur þau umráð yfir þessu húsi, sem því er nauðsynlegt að hafa, til að geta starfað svo, að því fari ekki aftur ár frá ári. Húsið er nú orðið einstaks manns eign, keypt svo háu verði, að eigandinn verður að nota hvert tækifæri, sem gefst, til þess að leigja það fyrir hverskonar samkomur og skemtanir. Leikfjelagið fær því ekki að vera í húsinu nema rjett þau kvöldin, sem leikið er. Æfingar allar verða að fara fram annarsstaðar, í smáherbergjum úti í bæ. Er slíkt vitanlega allsendis ófullnægjandi, þótt ekki væri nema vegna þess, að beiting raddarinnar þarf að vera alt önnur í leikhúsinu, og auk þess verður ekki æft nema að hálfu leyti utan leiksviðsins. Hjer við bætist svo, að leiktjöld öll og aðra muni verður að fá geymda hjer og hvar úti í bæ, því húsráðandi má af engu rúmi sjá í húsinu fyrir slíkt.
Hjer er því ekki nema um tvent að ræða, að Leikfjelagið leggi niður starf sitt og leiklistin hjer lognist út af með því, eða þá að reisa leikhús. Það verður væntanlega eitthvað leikið eftir sem áður þarna í þessu sama húsi, því að eigandinn verður að hafa einhverjar tekjur af því. En jeg hefi enga trú á því, að sú leiklist verði þjóðinni til uppbyggingar, enda verður þá tilgangurinn alt annar en verið hefir með starfi Leikfjelagsins. Og það er nú líka alment viðurkent, að enginn kunni þeim tveim herrum að þjóna, guði og mammoni.
Jeg vona því, að háttv. deild verði mjer sammála um það, að það verði ekki lengur komist hjá því að reisa hjer leikhús. Og það því fremur, sem slík bygging yrði ekki aðeins til eflingar leiklistinni. heldur myndi líka t. d. sönglistin geta átt þar athvarf. Einnig mætti halda þar fræðandi fyrirlestra og fleira. Það er aðeins merkilegt, að ekki skyldi vera unnið að þessu þegar í stað, er mönnum flaug í hug það snjallræði, að leggja mætti skatt á skemtanirnar, og ríkissjóður var þó talinn yfir það hafinn að lúta að svo litlu. Það virðist þó svo, sem það hefði átt að liggja næst, úr því að ríkissjóður gat sjeð af þessum tekjum, að nota einmitt þennan skatt á skemtanafýsn manna til þess að bæta skemtanirnar, nota skattinn af hinum ljelegri skemtunum til þess að styrkja þær betri. En þegar skemtanaskattslögin voru samþykt, var mönnum ekki eins Ijóst orðið og nú, hve óhjákvæmilegt það er að koma upp leikhúsinu. Menn munu ekki heldur hafa gert sjer von um svo miklar tekjur af þessum skatti, að hann myndi koma að nokkru liði í því skyni. En það, að skatturinn var lagður undir bæjar- og sveitarsjóði, mun að nokkru leyti hafa stafað af misskilningi. Sú ástæða var færð fyrir því fyrst og fremst, að bæjarsjóður Reykjavíkur hefði ekki þær tekjur af kvikmyndahúsunum, sem honum bæri. En vitanlega var honum innan handar að ná hæfilega miklum tekjum af þeim með útsvarinu. Í raun og veru er skatturinn þannig algerlega órjettmætur sem bæjarskattur. Og bæjarstjórninni var það heldur ekki neitt áhugamál að fá að leggja þennan skatt á, sem sjá má á því, hve seint hún notaði sjer heimildina. Og eins er um aðra bæi. — Nú er það komið í ljós, að tekjur af þessum skatti eru töluvert meiri en ætlað var í fyrstu. Hann mun nú vera áætlaður um 30 þús. krónur hjer í Reykjavík. En ekki veit jeg til þess, að það sje fastákveðið enn, til hvers honum skuli varið, nema hann á ekki að notast til venjulegra bæjarþarfa. Það er ráðgert að láta hann renna í sjerstakan sjóð, sem síðar verði varið til einhverra nytsamra fyrirtækja. En nú er það alkunnugt, að slíkir sjóðir verða venjulega að eyðslufje, bæði hjá bæjarsjóðum og ríkissjóði. Og þar sem skatturinn á í raun og veru engan rjett á sjer sem bæjarskattur, þá virðist það ekki vera mikil synd að taka hann af bæjunum. Og hvað Reykjavík snertir, þá er svo sem ekki um það að ræða að svifta hana öllum notum skattsins, ef reist verður fyrir hann veglegt leikhús í bænum. En augljóst er, að ef leiklistin er þess verð, að hún sje styrkt, þá nýtur Reykjavíkurbær fyrst og fremst góðs af því. En ef leiklistin nær vexti og viðgangi hjer höfuðstaðnum, þá getur heldur ekki hjá því farið, að alt landið njóti góðs af því, því hingað koma menn til dvalar um lengri og skemri tíma úr öllum hjeruðum landsins og ber í því sambandi ekki síst að minnast skólafólksins.
Að lokum skal jeg taka það fram, að ráðgert er, ef þetta frv. verður samþykt, að hægt verði að fara að byrja að reisa leikhús eftir 2–3 ár. Eftir 3–4 ár yrði þá komið upp sæmilegt leikhús hjer í bænum, þannig gert, að það mætti gera fullkomnara síðar, er efni leyfðu. Jeg hefi orðið þess var af viðræðum við menn, að þetta muni þykja ærið loftkastalakendir draumórar. En mjer virðist þessi loftkastali fagur, og jeg veit, að ef ekki brestur viljann, þá er það á valdi háttv. þm. að koma honum á fastan grunn. Og jeg er sannfærður um, að ef það verður úr, þá verður þessa þings minst með virðingu og þakklæti löngu eftir að öll önnur störf þess eru gleymd.
Jeg geri ráð fyrir því, að háttv deild vilji, að umr. lokinni, vísa málinu til nefndar, og lít jeg svo á, að best eigi við, að það verði þá falið mentamálanefnd.