13.04.1923
Neðri deild: 41. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1607 í B-deild Alþingistíðinda. (1358)

99. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Frsm. (Þorsteinn Jónsson):

Mentamálanefnd hefir samþykt að mæla með frv. þessu, þar sem henni hefir ekki blandast hugur um, að um menningarmál sje að ræða og að hjer muni seint verða reist þjóðleikhús, nema þetta frv. verði samþykt.

Bæði flm. og nefndin líta svo á, að þetta mál sje jafnmikilsvert fyrir alt landið, þar sem hingað til Reykjavíkur streymir fólk úr öllum landshlutum til dvalar, um lengri eða skemri tíma, á öllum tímum ársins.

Nefndin hefir gert 3 brtt. við frv. — Fyrsta brtt. er við 1. gr. frv. Í frv. er svo ákveðið, að aðeins þeir kaupstaðir, sem hafi 2000 íbúa eða fleiri, gjaldi skemtanaskatt. Verða það alls aðeins 4 kaupstaðir á landinu. Nefndin leggur til, að sú breyting verði gerð á frv., að allir kaupstaðirnir og þau þorp, sem hafa 1000 íbúa eða fleiri, borgi skemtanaskatt í þjóðleikhússjóð. Nefndin byggir þessa brtt. sína á því, að kauptún og þorp af þessari stærð hafi skilyrði til að halda uppi leikum. Þjóðleikhús á að verða nokkurskonar háskóli leikenda um alt land, því að leikendur frá hinum minni kauptúnum munu koma þangað og sjá, hvað þar fer fram og taka sjer til fyrirmyndar. Sömuleiðis eiga þeir og hin smærri leikhús að geta fengið leiðbeiningar um leikaval og fleira. er að leiklistinni lýtur. Er því ekki nema rjettmætt, að minni kauptúnin greiði einnig í þennan sjóð, enda þótt sá skattur, sem þau mundu greiða, nemi aldrei nema litlu. Önnur brtt. er við 3. gr. frv. Þótti nefndinni ákvæði a-liðs 3. greinar eigi nógu skýr, nema nokkru ljósar væri kveðið að orði um, hvaða fyrirlestrar ættu að vera skattfrjálsir, og leggur því til, að það sjeu allir þeir fyrirlestrar, sem styrktir eru af opinberu fje.

Þá er það lóðin undir þjóðleikhúsið; þriðja brtt. er um hana. Í frv. er til tekið, að hún skuli vera á Arnarhólstúni neðanverðu. norðan Hverfisgötu. Þetta vill nefndin ekki taka á sig að ákveða, þar eð hún gat ekki rannsakað það atriði til hlítar. Það þarf að hafa í huga ýmsar aðrar byggingar, sem á að reisa þarna. Vill hún því ekki ákveða staðinn nánar en að leikhúsið verði leist á Arnarhólstúni, og lítur nefndin svo á, að það saki ekki, þótt ekki sje nánar kveðið á um þetta atriði í lögunum, ef frv. verður samþykt.

Það eru nú þegar komin fundarlok, og ætla jeg því eigi að reifa þetta mál meira að sinni, enda hefi jeg fundið, að undirtektirnar muni verða svo góðar, að þess mun því ekki þörf.