23.04.1923
Neðri deild: 48. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1615 í B-deild Alþingistíðinda. (1367)

99. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Sveinn Ólafsson:

Jeg á brtt. við frv. á þskj. 419, við 3. gr. þess. Legg jeg til, að a-liður gr. orðist svo, sem stendur í brtt. minni, og feld verði burtu úr greininni orðin „sem styrktir eru af opinberu fje“. Er innskot þetta sett inn í frv. eftir till. mentmn. En jeg get ekki verið því sammála, að þeir fyrirlestrar, sem styrkir eru, eigi að njóta skattfrelsis framar hinum, sem jafnt eru fræðandi, en þó ekki styrktir af opinberu fje.

Háttv. 2. þm. Reykv. (JB) þótti stoðum kipt undan fyrirtækinu með því að undanþiggja skattinum kauptún og kaupstaði, er hefðu lægri íbúatölu en 1500. Er nokkuð til í þessu, en aðgætandi er, að Reykjavík, sem mun koma til að bera mestan kostnaðinn af þessu, hefir margfaldlega meiri not af stofnun þjóðarleikhússins en aðrir kaupstaðir eða kauptún landsins. Er og aðgætandi, að þessi bær hefir mikið seiðmagn og dregur fólk að sjer úr öllum landshlutum, ýmist til langdvalar eða gistingar, og taka þannig flestir landsmenn beinan eða óbeinan þátt í stofnkostnaði þessa fyrirtækis.