23.04.1923
Neðri deild: 48. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1623 í B-deild Alþingistíðinda. (1373)
99. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Frsm. (Þorsteinn Jónsson):
Háttv. 2. þm. Reykv. (JB) hneykslast á því, að jeg hafi fallist á þá tillögu háttv. þm. Borgf. (PO) að undanþiggja kauptún með 1000–1500 íbúum. Þetta á jeg bágt með að skilja hjá þessum háttv. þm. Jeg fjellst á þessa tillögu háttv. þm. Borgf. til samkomulags, vegna þess að hún er smátt atriði í máli þessu, og því fanst mjer ekki rjett að standa á móti henni og eiga það þá á hættu, að málið yrði felt. Þá sagði hann, að með þessari brtt. væri meiri hluti landsins undanskilinn skattinum. En því skýtur nokkuð skökku við hjá háttv. þm., þar sem það eru aðeins ein 2 kauptún, Bolungarvík og Akranes, sem undan skattinum falla, ef till. verður samþykt. Þess vegna fjellst jeg á þetta, að jeg taldi skattinn frá þessum stöðum eigi geta munað miklu, og mjer þótti því órjett að láta málið stranda á þessu einn.
Um hina brtt. háttv. þm. Borgf. (PO) hefi jeg engu heitið; en mentamálanefndin taldi það ekki mundu svara kostnaði að innheimta minni skatt en sem til fjelli í 1000 manna þorpum og þar yfir.