14.03.1923
Neðri deild: 20. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í B-deild Alþingistíðinda. (142)
13. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Þórarinn Jónsson:
Jeg get ekki neit að því, að mjer fundust orð háttv. frsm. minni hl. (ÞorlG) um mismun þann hinn mikla nokkuð þokukend. Og ekki sannar hann neitt með því, þó ríkissjóður missi 100 þús. kr. tekjur, að það sje stórvægileg gjaldsþolsbjörgun fyrir skattgjaldendur; svo margir eru þeir. En eitt er víst, að fjöldi af gjaldendum, sem skatt geta greitt, falla undan.
Hvað snertir orð háttv. 1. þm. Reykv. (JaM). um hve miklu muni á gjaldendum í frv. verði samþykt svona, þá er mjer það vel ljóst, því jeg hefi hjer skrá yfir mismuninn. Á t. d. 2000 kr. tekjum munar það einum 8 kr. og á 4000 kr. tekjum 28 kr. Þetta er allur munurinn, og mun engan óa við að greiða með þeim tekjum.
Jeg endurtek það svo, að fjarri mun því, að allar umkvartanirnar, sem komið hafa aðeins hjá þingmönnum Reykjavíkur, hafi af gjaldþolsskorti, heldur af einhverjum öðrum ástæðum.