09.05.1923
Efri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1664 í B-deild Alþingistíðinda. (1444)

151. mál, eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum

Forsætisráðherra (SE):

Jeg geri ekki ráð fyrir því að þurfa að mæla lengi með frv. þessu, og jeg vona, að það verði ekki til þess að vekja upp aðrar umræður, sem nú ættu að fá að liggja í dái. Málið fjekk, svo sem kunnugt er, mjög greiðan gang gegnum háttv. Nd., og hjer vona jeg, að það hljóti ekki verri viðtökur.

Eins og kunnugt er, hefir eftirlit landsstjórnarinnar með sparisjóðum verið mjög lítið, en mjer virðist ekki lengur mega við svo búið sitja, þar eð mjög miklir hagsmunir allrar þjóðarinnar eru í húfi. En úr þessu eftirlitsleysi á nú að bæta, og að sjálfsögðu mun þessi maður einnig hafa eftirlit með bönkum landsins. Að síðustu mælist jeg til þess, að frv. megi ganga nefndarlaust til 2. umr., því að jeg tel óþarft að tefja þetta mál, sem hlýtur að liggja öllum ljóst fyrir.