12.05.1923
Efri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1673 í B-deild Alþingistíðinda. (1458)

151. mál, eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum

Fjármálaráðherra (KIJ):

Út af þeim ummælum hv. 5. landsk. þm. (JJ), að ekki væri farið að rannsaka sparisjóðinn á Eyrarbakka, skal jeg geta þess, að fyrir viku síðan gerði jeg ráðstafanir til þess, að farið væri að byrja á þeirri rannsókn. Síðan hefi jeg ekki, vegna anna, getað grenslast eftir því máli, en ef rannsóknin er ekki byrjuð, þá byrjar hún alveg á næstunni.

Viðvíkjandi vali fyrirhugaðs eftirlitsmanns, skal jeg geta þess, að mjer þykir óhugsandi, að embættið verði haft að bitlingi, og aldrei höfum við ráðherrarnir vikið að því einu orði hvor við annan, hver ætti að fá embættið, enda hefi jeg ekki komið auga á neinn mann enn, sem jeg teldi sjálfsagðan. Þetta vildi jeg taka fram út af ummælum bæði hjer í þessari hv. deild og eins í hv. Nd.