12.05.1923
Efri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1675 í B-deild Alþingistíðinda. (1460)

151. mál, eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum

Guðmundur Ólafsson:

Háttv. 4. landsk. þm. (JM) byrjaði ræðu sína á því, að ekki myndi þýða að lengja mikið umræður um þetta mál nú á síðustu stundu, en talaði þó alllengi sjálfur, að mjer fanst.

Mjer þykir nú hálfkynlegt, ef ekki er ástæða til að tala um mál, sem ekki hefir mátt athuga í nefnd, en svo virðist sem sum mál sjeu þess eðlis, að þau megi ekki nálægt nefnd koma, ef ske kynni, að þar mætti varpa á þau nokkru ljósi.

Jeg tek það enn fram, að mjer finst undarlegt, að hin mikla þörf á þessu embætti skyldi ekki láta bóla á sjer fyr en nú í þinglokin. Og mjer þætti vænna um að fá einhverjar betri upplýsingar í málinu en þær, að deildin þurfi ekki að óttast, þó að hún samþykki frv. Jeg er sammála háttv. 4. landsk. þm. í því, að þingið hefir engan veginn reynst sparsamt, en ekki bætir það úr skák, að fara nú í þinglokin, athugunarlaust, að samþykki að setja á stofn dýrt embætti, ef það er ekki bráðnauðsynlegt. Og það hefir ekki verið sannað, að embætti þetta sje svo nauðsynlegt, að ekki megi bíða næsta þings og frekari rannsókna.

Þessi eftirlitsmaður á meðfram að líta eftir sparisjóðum, sem fæstir þurfa eftirlits með. En ekkert hefir verið áætlað, hversu marga sparisjóði hann eigi að endurskoða árlega, og hefði þó ekki verið úr vegi að láta fylgja frv. áætlun um það. Að mig minnir eru um 50 sparisjóðir í landinu, og þó að eftirlitsmaðurinn kæmi svo sem fjórða eða fimta hvert ár til hvers þeirra, þá hafa þeir tímann fyrir sjer að fara yfir um, þrátt fyrir það eftirlit. En sem betur fer er alt slíkt mjög fátítt um sparisjóði.

Þá fer þingið oft raunalegast út úr málum, þegar stofna þarf ný embætti, og sama verður líklega tilfellið í þetta sinni.

Það er nú að vísu sagt, að í þetta embætti verði skipaður vel fær maður. En jeg hefði ekki kunnað því illa, að búið væri að hugsa sjer manninn, sem fyrst ætti að skipa, svo að þingmenn vissu, að hverju þeir gengju, ef þeir samþyktu frv., en samkvæmt yfirlýsingu hæstv. fjrh. — KIJ) hefir stjórnin ekki hugsað sjer neinn, og verður ekki sagt, að hún hafi gert sjer málið ljóst, að öðru en launahæðinni.

Yfirleitt finst mjer hjer eiga að fara líkt að og svo oft áður. Embættið á að stofna áður en þörf er á því og áður en vissa er fyrir, að hæfur maður fáist til að gegna því.