12.05.1923
Efri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1682 í B-deild Alþingistíðinda. (1466)
151. mál, eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum
Forsætisráðherra (SE):
Viðvíkjandi því, sem háttv. 1. þm. Húnv. (GÓ) tók fram, þá hefi jeg áður skýrt frá því, að ástæðan til þess, að frv. þetta kom ekki fyr fram, er sú, að stjórnin var ekki sammála um þetta efni meðan ráöherrarnir voru þrír.
Annars held jeg, að jeg hafi þegar tekið alt fram, sem máli skiftir, og svarað aðfinslum við frv., og er ástæðulaust fyrir mig að endurtaka það.