09.03.1923
Efri deild: 13. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í B-deild Alþingistíðinda. (1588)
11. mál, fátækralög
Atvinnumálaráðherra (KIJ):
Þingsályktunartillagan frá neðri deild Alþingis 1917 fór fram á, að sá styrkur, sem veittur væri þurfamönnum vegna ómegðar, slysa, sjúkdóma og elli, yrði eigi talinn sem sveitarstyrkur.
Stjórnin gat nú ekki farið svo langt; hún hefir ekki tekið til greina ómegð, eða fyrsta atriðið, en hitt kemur fram í frv. Um slys og sjúkdóma fjallar 1. gr., og 2. gr. um styrk veittan vegna elli.
En nefndin telur, að þurft hefði að fara enn lengra. taka bæði ómegð og atvinnuleysi með, en leggur þó til að þeir liðir þingsályktunartill., sem teknir eru til greina í frv. stjórnarinnar, um slys, sjúkdóma og elli, sjeu feldir niður. Ástæður nefndarinnar fyrir þessum till. sínum eru þær, að enn lengra hefði þurft að ganga, og til þess þyrfti að gerbreyta fátækralögunum. Framkvæmdin yrði líka alt of kostnaðarsöm.
Jeg get nú ekki verið sammála hv. nefnd, að rjett sje að fella þetta niður af þessum ástæðum, því breytingar, sem fara í þessa átt, hafa þegar verið gerðar. Lög nr. 61. 27. júní 1921, ákveða, að styrkur til sjúklinga, er leita sjer læknishjálpar í sjúkrahúsi að læknisráði, skuli eigi talinn sveitarstyrkur. Hið sama gildir og um berklaveikissjúklinga. Hjálp til þeirra skal ekki teljast sveitarstyrkur samkv. 1. nr. 43. frá 27. júní 1921. Það er því alveg eðlilegt að halda áfram á þessari braut, og það er einmitt ósamræmi, sje ekki haldið áfram í þessa stefnu. Sá sjúklingur, sem kemst í sjúkrahús, missir engin rjettindi við það. En hinn, sem liggur heima og fær ekki afborið kostnaðinn við leguna, missir þau.
Ástæður nefndarinnar um kostnaðinn við framkvæmd fyrgreindra laga eru að vísu á miklum rökum bygðar. Byrðin er þegar orðin mjög mikil, meiri en nokkurn grunaði. Legst hún mest á ríkissjóð og fer mjög hækkandi. Þetta liggur í því, að eftir gamla fyrirkomulaginu, þegar einstaklingurinn eða hreppurinn átti að borga læknishjálp, þá var það síður gert, að notuð væru sjúkrahúsin. Fátæklingarnir dóu þá bara heima. Þessi lög eru því hvöt til, að sjúklingarnir fari í sjúkrahúsin, en þar er jafnaðarlega meiri von um líf og bata, og er það hagur fyrir sveitarfjelögin að fá mennina aftur heim heila og vinnufæra. Sama gildir og, ef fátæka menn kostar það ekki rjettindamissi að leita sjer læknishjálpar. Það verður líka hagur fyrir sveitarfjelögin, og er því rökrjett framhald af hinu. En einhversstaðar verður að nema staðar, því þar kemur 29. grein stjórnarskrárinnar til greina. Stjórnarskráin gerir ótvíræðlega ráð fyrir óendurgoldnum sveitarstyrk, og hann er til, ef ómegð og atvinnuleysi, er krefur styrks úr fáttækrasjóði, hefir rjettindamissi í för með sjer; annars þarf stjórnarskrá í breytingu.
Jeg vil því mjög nauðugur sleppa 1. gr. Eins er um þá næstu (2. gr.) Það er hart, að 65 ára gamalt fólk, fátækt og útslitið. tapi rjettindum sínum. Ummæli hv. frsm. (JM) um ellistyrktarsjóðina eru að vísu falleg, en hætt er við að sú hugsjón, að ellistyrkurinn dugi til framfærslu allra hjálparþurfandi gamalmenna, eigi langt í land.
Fyrir nokkrum árum vissi jeg, að ellistyrktarsjóðir smærri hreppa voru innan við þúsund krónur. Til dæmis átti Grímseyjarhreppur þá innan við 1000 kr., en er reyndar svo heppinn að eiga annan sjóð; en slíkt er sjerstakt fyrir hann.
Nú munu fáir hreppar eiga mikið yfir 2000–3000 kr., nema þá kauptún og kaupstaðir. Og styrkurinn, sem gamalmennin fá, er meira til glaðningar einu sinni á ári heldur en verulegur styrkur sje að honum.
Jeg vil því eindregið mælast til þess, að 1. og 2. gr. frv. fái að halda sjer, en 3. gr. frv. má falla niður.
Þá er það 4. gr. frv., sem hv. nefnd hefir ekki viljað láta standa, fremur en hinar fyrri. Hv. frsm. (JM) gat þess, að eitthvað í greininni muni hafa fallið úr eða ruglast. Skal jeg athuga það til 3. umr., ef greinin verður samþykt; annars hefir það enga þýðingu.
Í 69. gr. fátækralaganna stendur:
„Nú hefir maður, sem framfærslurjett á annarsstaðar, þegið 100 kr. styrk eða meira í dvalarsveit sinni og bersýnilegt er, að hann sje kominn á stöðugt sveitarframfæri, og hefir þá dvalarsveit hans og framfærslusveit hvor um sig rjett til að krefjast þess, að hann sje fluttur fátækraflutningi á framfærslusveit sína“.
Þetta gildir jafnt, þó viðkomandi maður hafi dvalið 8–9 ár í hreppnum, að bæði dvalarhreppur og framfærsluhreppur hafa leyfi til að flytja þurfamanninn.
Í 4. gr. frv. er breyting til bóta á þessu ákvæði. Skilyrðin fyrir því, að flutningur megi fram fara, eru allmikið hert. Ef maðurinn hefir dvalið 3 ár eða lengur, þá þarf úrskurð frá lögreglustjóra, um að flutningur megi fara fram, ef framfærslusveit hefir óskað þess, en dvalarsveit hefir ekkert um það að segja. Þetta bætir kjör þurfamanna.
En eins og hv. 2. þm. Eyf. (EÁ) tók rjettilega fram, þá verður greinin óþörf, ef sveitfestistíminn er færður niður í 3 ár eða neðar, og er mjer þá ekkert kappsmál að halda í hana.
Þá kemur stytting sveitfestistímans, sem er aðalatriðið í frv. Jeg skal eigi vera fjölorður um það, fremur en aðrir, enda er þetta ákvæði svo í eðli sínu, að um það má deila til eilífðar. Jeg tók til 5 ár í frv. og gat um ástæður fyrir því við 1. umr. Nú er komin brtt. við þessa áratölu, á þskj. 74, um að færa tímann niður í 3 ár. Jeg er nú alls ekki á móti því, að tíminn sje færður þetta niður, en tel nauðsynlegt, ef það er gert, að heimila sveitarstjórnunum vald til að hafa hemil á innflutningi í hreppana. Nú er ekki um slíkt vald að ræða. Hverjum manni er heimilt að setjast að þar, sem hann vill, án leyfis sveitarstjórna, sem hafa engan myndugleik til að neita um aðsetur. Áður höfðu sveitarstjórnir þetta vald, enda var þá óspart neitað um aðsetursleyfi, og það þótt duglegir menn ættu í hlut, af ótta fyrir því, að þeir yrðu byrði fyrir sveitarfjelagið, eða þá börn þeirra, sem fæddust í hreppnum. Þetta þótti ómannúðlegt, og var talið sjálfsagt að afnema það um sama leyti og vistarbandið var leyst.
En verði sveitfestistíminn ákveðinn 3 ár, þá verður að gefa sveitarstjórnunum einhvern íhlutunarrjett um innflutninginn.
Verði sveitfestistíminn færður niður í 3 ár, þá verður brtt. á þskj. 74, um að „2 árin“ komi fyrir „3 árin“ sjálfsögð. Enn fremur ef aldurstakmarkið verður fært niður, þá verður niðurlag 7. gr. að falla burt. Þessu hefir nefndin ekki tekið eftir.