17.03.1923
Neðri deild: 22. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1750 í B-deild Alþingistíðinda. (1603)

11. mál, fátækralög

Pjetur Ottesen:

Jeg ætla að nota tækifærið, um leið og frv. þetta er hjer í deildinni til 1. umr., til þess að fara nokkrum orðum um fátækramálið, eins og það horfir við frá mínu sjónarmiði.

Verstu annmarkana á löggjöfinni um fátækraframfærslu álít jeg vera þessa:

Í fyrsta lagi skriffinskan og rekistefnan út af sveitfestinni og endurgreiðslu á veittum styrk, öll sú óskapavinna, sem í það fer, bæði hjá hreppsnefndum og bæjarstjórnum, sýslumönnum og stjórnarráðinu. Í öðru lagi misrjetti það, er á sjer stað, að því leyti, hvernig sumar sveitir verða ver úti en aðrar um kostnað af ómögum; sumir hreppar rísa naumast undir fátækraframfæri sínu, og er eins og það sjeu álög á sumum sveitum, en aftur eru til þeir hreppar, sem því nær engu þurfa til framfærslu að kosta, og stendur það venjulega í öfugu hlutfalli við gjaldþol manna í þessum sveitum. Afkoma manna er venjulega hvað verst í þeim hreppum, þar sem mest eru sveitarþyngslin af ómögum.

Til þess að ráða bót á þessum annmörkum, yrði að gera gagngerða breytingu á allri fátækralöggjöfinni. Það má hugsa sjer hana svo í aðaldráttum:

Landið verði gert að sameiginlegu framfærsluumdæmi og sveitfesti hverfi úr sögunni, en til þess að koma í veg fyrir hóflausa bruðlun í styrkveitingum og tryggja eitthvert íhald í þeim efnum, mundi vera heppilegt og nauðsynlegt, að hinn sameiginlegi framfærslusjóður greiddi ekki nema 3/4 hluta af öllum framfærslukostnaði þurfamanna í landinu, en hluta bæri dvalarsveit styrkþega, eða sú sveit, sem hann er staddur í, þegar hann verður styrkþurfi, hvort sem hann á þar lögheimili eða ekki. Þó greiði framfærslusjóður að fullu allan sjúkrahúskostnað þurfalinga, og jafnframt hverfur þá úr sögunni tillag landssjóðs, og enn fremur að fullu úrskurðuð barnsmeðlög, sem dvalarsveit verður að greiða barnsmóður sökum vanskila af hálfu föður.

Tekjur framfærslusjóðs fást með niðurjöfnun á hvert sýslu- og bæjarfjelag á landinu, að fjórðungi eftir samanlögðu skattmati fasteigna í sýslunni eða kaupstaðnum, að fjórðungi eftir tölu verkfærra karlmanna, að fjórðungi eftir samanlagðri fjárhæð skuldlausrar eignar og tekna af eign og atvinnu, og að fjórðungi eftir samanlagðri aukaútsvarsupphæð þeirri, sem niður er jafnað í bæjarfjelaginu eða samtals í öllum hreppsfjelögum hverrar sýslu. Greiðslu þeirri, er á hvert sýslufjelag kemur á þennan hátt, jafnar síðan sýslunefnd niður á hreppsfjelögin eftir sömu reglu, sem um niðurjöfnun sýslusjóðsgjalda, þannig, að tillag hreppsins til framfærslusjóðs verði fólgið í sýslusjóðsgjaldinu, en framfærslugjald úr allri sýslunni verði liður í sýslusjóðsreikningunum.

Sveitar- og bæjarsjóðir leggi fram allan árskostnað til þurfamanna í hlutaðeigandi sveitar- eða bæjarfjelagi, en í lok hvers reikningsárs sendi sveitar- eða bæjarstjórn sýslumanni skrá um framfærsluna, sannaða með nægum skilríkjum, ásamt kröfu um endurgjald að lögmæltum hluta úr framfærslusjóði landsins. Sýslumaður gerir framfærsluskrá úr allri sýslunni og sendir stjórn framfærslusjóðs.

Atvinnumálaráðuneytið hefir á hendi stjórn framfærslusjóðsins og öll störf, er því fylgja, svo sem niðurjöfnun framfærslugjalds á sýslurnar og kaupstaðina, greiðslu á hluta sjóðsins til ársframfærslu til sveitar- og bæjarfjelaganna, innheimtukröfur á barnsfeður fyrir ógoldin meðlög, sem framfærslusjóður hefir orðið að greiða, o. s. frv.

Endurgreiðsla frá þurfamönnum á skuld fyrir þeginn sveitarstyrk renni að 3/4 í framfærslusjóð og að 1/4 í sjóð dvalarsveitar þeirrar, er styrkur var þeginn í, nema styrkur sá, sem endurgreiddur er, hafi verið veittur áður en þessi skipun var gerð, en þá renni endurgreiðslan óskift til sveitar þeirrar, sem styrkinn veitti.

Með þessari skipun fátækramálanna mætti sníða af verstu annmarkana, sem eru á löggjöf okkar um þetta efni og jeg nefndi í upphafi.

En hins vegar má ganga að því vísu, að með því að gera landið að sameiginlegu framfærsluhjeraði, er það hvergi nærri eins tryggilegt og með núverandi fyrirkomulagi, að stilt sje í hóf með styrkveitingar og gætt sje fullrar hagsýni og varfærni um þá hluti.

Það þarf því fyrst og fremst, ef slík breyting yrði gerð, að búa svo vel og hyggilega um þá hnúta, sem kostur er á, að þetta valdi eigi aukinni fjáreyðslu á þessu sviði.

Það getur náttúrlega verið álitamál, hvort það sje næg trygging fyrir varfærni í styrkveitingum, að dvalarsveitin fái endurgreidda 3/4 hluta útlagðs framfærslukostnaðar, og verði þannig æfinlega að bera 1/4 kostnaðarins sjálf, en hins vegar skapar þetta, ásamt því, sem ákveðið er, að samanlögð upphæð aukaútsvara allra hreppa innan sýslufjelagsins sje höfð einn liður í niðurjöfnun á greiðslu í framfærslusjóðinn, þó óneitanlega mikið íhald.

En sje hægt að búa svo um hnútana, að þetta fyrirkomulag hafi ekki í för með sjer enn meiri eyðslu, má hiklaust telja breytinguna mikla og nauðsynlega rjettarbót. Það er ekki svo að skilja, að mjer komi til hugar, að slík breyting á fátækralöggjöfinni sem þessi geti orðið gerð nú á þessu þingi. Hún krefst að sjálfsögðu miklu meiri og rækilegri undirbúnings en tími vinst til nú. En jeg vildi nota tækifærið til þess að drepa á þessa hlið málsins.

Á þessu stigi ætla jeg ekki að ræða neitt um frv. það um breyting á fátækralögunum, sem hjer liggur fyrir, en vil þó geta þess, að jeg tel rjett og til bóta að stytta sveitfestistímann, og það meðal annars sakir þess, að mjög mikil breyting hefir orðið á ýmsum háttum í þjóðfjelagi okkar síðan þetta 10 ára núgildandi ákvæði um sveitfestistímann var sett. Og það verður tæplega um það deilt, að það sje eðlileg afleiðing þessara breytinga, að sveitfestistíminn sje styttur, og það að mun, en um hitt má náttúrlega deila, hve langt eigi að ganga í breytingunum á þessu eina atriði út af fyrir sig.