24.03.1923
Neðri deild: 28. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í B-deild Alþingistíðinda. (163)
13. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Þórarinn Jónsson:
Jeg hreyfði mótmælum nokkrum gegn máli þessu við 3. umr. og reisti þau á þeim rökum, að reynsla væri engin fengin enn um framkvæmd hinna gildandi laga. Jeg færði einnig rök að því, að framtalið nú á þessu ári mundi leiða til meira samræmis en áður var og geta leiðrjett ýmislegt það, sem aflaga fór áður fyr. Jeg benti á það, að litlar líkur væru fyrir því, að breytingar þessar gætu komið til framkvæmda á þessu ári, eins og ætlað er, þar sem komið er fram yfir þann tímann sem skattanefndir eiga að hafa lokið við skattskrárnar. En ef yfirskattanefndir eiga að hreyfa þessu í samræmi við nýju breytingarnar, þarf að sjálfsögðu að framlengja alla fresti í lögunum, og gæti það þá enda leitt til þess, að manntalsþingin yrðu ekki háð sumstaðar fyr en um heyannir eða á slætti. En jeg er þess viss, að margir bændur vildu heldur gjalda krónunni meira í skatt en þurfa að hlaupa á þann hátt úr miðjum heyönnum á manntalsþing. Ennfremur hefi jeg bent á það, að breytingar eins og þessar nú mundu tefja fyrir frekari breytingum á lögunum á næsta þingi. Þar sem gildi þeirra er nú ekki bundið við neinn ákveðinn tíma, en þeirra er margra annara þörf.
Ef þetta frv. væri nú felt, eins og jeg tel rjettast og sjálfsagt, yrði að endurskoða lögin í heild sinni: en þangað til mætti framlengja þau, þar sem þau gilda ekki nema til næstu ársloka.