24.03.1923
Neðri deild: 28. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í B-deild Alþingistíðinda. (165)

13. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Þórarinn Jónsson:

Háttv. þingmaður sem síðast talaði, sagði svo, að jeg hefði komið nokkuð seint með andmæli mín. Jeg vil þó benda á, að jeg kom með þau þegar við 3. umr. málsins, og býst jeg við, að það hafi hvorki verið verra nje betra en við 2. umr. En þá þótti mjer sannast að segja ekki ábætandi elginn, svo að jeg beið til 3. umr. Það veit líka háttv. þingmaðurinn, að er ekkert einsdæmi, heldur altítt: svo þessi aðfinsla er gerð meira af vilja en mætti. Þar sem hann talaði um áskoranir þingmálafunda um breytingarnar, þá er áreiðanlega of mikið úr þeim gert og óánægjunni með lögin yfirleitt, sjerstaklega hvað snertir þær breytingar, sem nú eru á gerðar. Að minsta kosti er það svo úti um land. Hitt atriðið. hvaða skarð þetta heggur í tekjur ríkissjóðs, mun hv. deild komast að raun um síðar.