05.05.1923
Efri deild: 56. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1822 í B-deild Alþingistíðinda. (1665)

43. mál, vegir

Frsm. (Guðmundur Guðfinnsson):

Jeg get látið mjer nægja að vísa til nál. í málinu um það, hvernig nefndin lítur á það. Kemur þar fram, að nefndin er frv. samþykk að efni til og telur það víst, að við endurskoðun laganna verði þessi þjóðbraut tekin upp. Er það líka álit vegamálastjóra. Hitt er vitanlega álitamál, hvort legið hefir á þessu nú. Þó hefir nefndin eigi viljað sporna á móti því, að frv. nái fram að ganga í þetta sinn. Býst hún eigi við, að þetta verði nema á pappírnum hvort eð er. Var því samkomulag um það í nefndinni að leggja til, að frv. yrði samþykt.