04.05.1923
Efri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1829 í B-deild Alþingistíðinda. (1684)

93. mál, vegir

Sigurður Hjörleifsson Kvaran:

Háttv. frsm. (GGuðf) mintist á brtt. mína á þskj. 536.

1911 var sú breyting gerð á vegalögunum, að viðhaldi vegarins yfir Hellisheiði var með öllu ljett af Árnessýslu, en ríkissjóður hefir annast hann síðan. Nú er önnur till. komin fram um að ljetta vegaviðhaldi af sömu sýslu, þó ekki sje um fjallveg að ræða. En hjer finst mjer tvisvar höggið í hinn sama knjerunn, ef Múlasýslurnar eiga ekki að fá ljetti viðhalds á fjallvegi þeim — Fagradalsbrautinni — er þær eiga fyrir að sjá. Mjer finst, að það væri sanngjarnt, að Múlasýslurnar fengju þann rjett árið 1923, sem Arnessýsla fjekk árið 1911. Um þetta er annars það að segja, að vegirnir í Múlasýslunum eru í mjög slæmu ástandi. Þar er frá náttúrunnar hendi mjög illa fallið til vegagerðar, einkum í Suður-Múlasýslu. Sýsluvegirnir eru óruddir og sýsluvegafjeð hefir alt gengið í viðhald þessa eina vegar. Hjer er því um mikla þörf að ræða. Brtt. fer ekki fram á, að ríkið kosti viðhald alls vegarins. Vegurinn frá Reyðarfirði að Egilsstöðum er um 35 km. En þessi kafli er hjer um bil 2/3 af allri leiðinni, eða tæplega þó. Það er ekki ósennilegt, að við endurskoðun vegalaganna verði komist að þeirri niðurstöðu, að ríkið kosti viðhald flutningabrautanna að öllu. En hjer er farið fram á minna í bráðina. En þó að endurskoðun fari fram, er óvíst, hve nær slík breyting, sem af leiddi, kæmi til framkvæmda.

Á hverju þingi eru gerðar 2–3 breytingar á vegalögunum, því margt þykir þurfa að laga. Mjer finst því öll sanngirni mæla með því, að þessum sýslum sje veitt nokkur línkind, fyrst nú er verið að breyta vegalögunum á annað borð.