04.05.1923
Efri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1833 í B-deild Alþingistíðinda. (1687)

93. mál, vegir

Guðmundur Ólafsson:

Jeg skal taka það fram, að jeg kann eigi vel við frv. eins og það er. Þykir mjer það næsta undarlegt af vegamálastjóra að leggja til, að taka aðeins tvær flutningabrautir á ríkissjóð. Ef nauðsynlegt er að taka nokkrar þeirra upp nú, þá vildi jeg spyrja, af hverju þær eru eigi allar teknar upp. Hjer er aðallega verið að tala um þau hjeruð, sem fengið hafa fyrst brautir, sem ríkissjóður hefir nú hjálpað til að endurleggja, og kvartað hafa undan viðhaldinu á þeim. Nú á að láta líta svo út, að þau hjeruð sjeu sjerstaklega hart leikin, sem fyrst fengu flutningabrautir. En það er alls eigi minst á þau hjeruð, sem nú fyrst eru að fá flutningabrautir. Það hefir komið fram brtt. frá háttv. 2. þm. S.-M. (SHK), og geri jeg ráð fyrir, að ef hún verður samþykt, þá verði von á fleirum. Jeg get ekki sjeð neinn mun á því, hvort viðhaldið á brautunum verður tekið upp einu árinu fyr eða seinna. Vænti jeg þess, fyrst háttv. Alþingi tekur upp þessa stefnu í vegamálunum nú, þá taki ríkissjóður að sjer viðhald annara brauta jafnóðum og þær eru fullgerðar, eftir tillögum vegamálastjóra, og því mun jeg ekki amast við frumvarpinu eins og það er.