04.05.1923
Efri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1833 í B-deild Alþingistíðinda. (1688)

93. mál, vegir

Sigurður Hjörleifsson Kvaran:

Jeg er hæstv. stjórn þakklátur fyrir þau fögru loforð, sem hún hefir gefið um það að taka ósk sýslubúa til greina við væntanlegar breytingar á lögunum fyrir næsta þing. Jeg á að vísu bágt með að skilja það, að till. mín geti orðið til þess, að málið verði eigi afgreitt á þessu þingi. Jeg býst eigi við, að það fari öðruvísi en svo, að ef till. mín verður samþykt, þá fer frv. aftur til háttv. Nd. Að vísu er nokkur hætta á því, að halinn lengist, en það ætti eigi að þurfa að verða frv. að fjörlesti. Jeg skal þó, í trausti til yfirlýsingar hæstv. atvrh. (KIJ), taka till. mína aftur, í þeirri von, að efndirnar verði eftir yfirlýsingunni. (HSt: Jeg tek till. upp aftur).