24.03.1923
Neðri deild: 28. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (170)

13. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Magnús Guðmundsson):

Jeg vil benda háttv. fjrh. (MagnJ) á það, að það hljóta að verða yfirskattanefndirnar, sem verða að lagfæra skattskrárnar, Og hæstv. ráðherra gat aldrei búist við, að frv. þetta gengi gegnum þingið á skemri tíma en raun hefir á orðið. Það var ekki hægt að búast við því, að þetta frv. yrði svo fljótt afgreitt, að undirskattanefndir hefðu ekki áður lokið störfum.

Frv. hefir verið flýtt eftir föngum í fjárhagsnefnd.